Flóafélögin Efling, Hlíf og VSFK Atkvæði voru í dag talin í póstatkvæðagreiðslu Flóafélaganna, Eflingar, Hlífar og VSFK um samkomulag um breytingar og framlengingu á kjarasamningi við fjármála og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritað var þann 7. október sl. Samkomulagið var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða eða um 87% atkvæða. Samningurinn gildir afturvirkt frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019.Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar voru eftirfarandi:Já sögðu 147 eða 87% þeirra sem atkvæði greidduNei sögðu 22 eða 13%Auðir seðlar og ógildir voru 0.Samkvæmt þessum úrslitum er samkomulagið samþykkt. Á kjörskrá voru alls 543 félagsmenn. Atkvæði greiddu 169 eða 31%.Nánari upplýsingar eru á heimasíðum félaganna um innihald samkomulagsins, sjá hér á heimasíðu Eflingar.