Það er ánægjuefni að skrifað hefur verið undir nýjan kjarasamning aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands við Samtök atvinnulífsins.Samningurinn gildir frá 1. janúar 2016 til 31. desember 2018. Atkvæðagreiðsla verður kynnt á næstu dögum en henni þarf að vera lokið fyrir 26.2 2016. Við teljum að kjarasamningurinn feli í sér verulegar viðbætur við þær hækkanir sem samið var um á síðasta ári fyrir félagsmenn. Samningurinn byggir á rammasamkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá 27.10 2015 og bókun um lífeyrisréttindi frá 5.5. 2011 og er ætlað að tryggja jafnræði í kjaraþróun á grundvelli sameiginlegrar launastefnu og jöfnun lífeyrisréttinda.Samninginn í heild sinni má sjá hér.Kynninguna má sjá hér.Samningurinn verður kynntur fyrir félagsmönnum á félagsfundi Eflingar sem haldinn verður fimmtudaginn 18. febrúar kl. 18.30, 4. hæð í húsnæði Eflingar, Sætúni 1.