Kjörstjórn Eflingar hélt sinn fyrsta fund í dag vegna komandi stjórnarkjörs í félaginu. Fundinn sátu einnig umboðsmenn þeirra tveggja lista sem fram hafa verið lagðir. Á fundinum var ákveðið að setja þegar í stað gang vinnu til að ganga úr skugga um lögmæti listanna. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu á morgun, fimmtudag.Næsti fundur kjörstjórnar verður haldinn nk. föstudag.