Það var engin lognmolla hjá Starfsafli í febrúar frekar en aðra mánuði ársins og fögnum við því. Við viljum sjá vöxt og við viljum sjá fyrirtæki leita til sjóðsins, þá er Starfsafl að skila sínu.Í febrúar bárust alls 40 umsóknir frá 25 fyrirtækjum. Styrkloforð voru alls 4.534.312 og þar af er búið að greiða 3.782.044,- Einhverjar umsóknir hafa ekki fengið afgreiðslu þar sem vantað hefur fylgigögn.Á bak við þessar tölur eru tæplega 700 einstaklingar, starfsmenn fyrirtækja sem hafa notið góðs af fræðslu á vegum fyrirtækisins og fyrirtækið nýtur góðs af aukinni þekkingu og hæfni sinna starfsmanna. Þetta er eins og segir á góðri íslensku, win win.Ef litið er nánar á efnisþætti umsókna þá var ein umsókn vegna Fræðslustjóra að láni, 3 vegna eigin fræðslu, 5 vegna skyndihjálpar og 3 íslenskukennslu, svo dæmi séu tekin.9 umsóknir voru vegna endurmenntunar atvinnubílstjóra en í lögum segir að bílstjóri sem ekur stórri bifreið í ökuréttindaflokki D1 og D til farþegaflutninga í atvinnuskyni og í flokki C1 og C til vöruflutninga í atvinnuskyni skuli sækja 35 kennslustunda endurmenntun á 5 ára fresti. Fjöldi nemenda á bak við þær umsóknir sem bárust í febrúar vegna endurmenntunarinnar eru 283 talsins, kennslustundir 108 og heildarstyrkupphæð 1.933.373,-Fyrirtæki með starfsfólk innan Flóabandalagsins geta sótt til sjóðsins og hvetur Starfsafl fyrirtæki til að hafa samband og kanna hvaða leiðir eru mögulegar. Þá má finna nánari upplýsingar á vef Starfsafls www.starfsafl.is eða í síma 510 7550.Frétt af vef StarfsaflsStarfsafl – starfsmennt Samtaka Atvinnulífsins og Flóabandalagsins varð til í tengslum við kjarasamninga vorið 2000. Þá var samið um stofnun sérstaks sjóðs sem ætlað er að byggja upp menntun almennra starfsmanna fyrirtækja. Símenntun starfsmanna er lykill fyrirtækja að betra starfsumhverfi, aukinni framleiðni og styrkir samkeppnisstöðu þeirra. Fyrirtæki geta sótt um styrk til að vinna sérstök starfsmenntaverkefni sem hafa fræðslu að markmiði og einnig geta einstaklingar sótt styrki í sjóðinn vegna fræðslu.
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.