Vilja að konur klæðist kjólum – Efling mótmælir harðlega

Efling-stéttarfélag berst gegn hvers kyns misrétti á vinnumarkaði og tekur allar ábendingar og kvartanir um mismunun alvarlega, segir Leifur Gunnarsson lögfræðingur á kjaramálasviði Eflingar. Þann 8. maí bárust félaginu kvartanir frá félagsmönnum þess hjá Hard Rock Cafe í Reykjavík. Tilefni þessara kvartana voru breytingar á reglum fyrirtækisins um klæðaburð kvenna á vinnustaðnum. Hingað til hafa konur á vinnustaðnum klæðst skyrtum og buxum, líkt og karlar, en nú krefst fyrirtækið þess að þær klæðist kjólum í stað skyrtna og buxna. Leifur segir að þetta hafi mætt andstöðu starfsmanna fyrirtækisins. Þær konur sem kvörtuðu til félagsins vildu áfram klæðast skyrtum og buxum á vinnutíma og jafnframt kom fram að kjólarnir sem þær áttu að klæðast væru bæði óþægilegir og ósmekklegir.Efling mótmælir harðlegaÍ bréfi sem Leifur Gunnarsson sendi fyrirtækinu bréfleiðis og í tölvupósti fyrr í dag er þess krafist að fyrirtækið láti tafarlaust af umræddum áformum. Leifur segir að í bréfinu sé áréttað að gæta skuli jafnræðis milli kynja á vinnumarkaði og að fyrirætlanirnar samræmist ekki jafnréttissjónarmiðum. Starfsmenn skuli njóta virðingar í starfi sínu og eðlilegt er að taka tillit til óska þeirra og athugasemda varðandi einkennisklæðnað á vinnustað. Það á ávallt að vera undir starfsfólkinu sjálfu komið hvort það ákveði að klæðast skyrtu og buxum, eins og allir starfsmenn hafa gert hingað til eða kjólum.