„Kjarmálasvið Eflingar – stéttarfélags hefur vart undan að sinna umkvörtunum félagsmanna sem fá greitt vaktaálag fremur en yfirvinnuálag jafnvel þótt hvorki sé til að dreifa ráðningarsamningi né vaktaplani“ segir í ályktun stjórnar Eflingar.Á fundi stjórnar Eflingar þann 23. ágúst var eftirfarandi ályktun samþykkt:„Stjórn Eflingar – stéttarfélags lýsir miklum áhyggjum af vanefndum fjölmargra atvinnurekenda í veitingahúsageiranum og víðar á ákvæðum um vaktavinnu í 3. kafla kjarasamnings vegna starfsfólks í veitinga- og gistihúsum. Kjarmálasvið Eflingar – stéttarfélags hefur vart undan að sinna umkvörtunum félagsmanna sem fá greitt vaktaálag fremur en yfirvinnuálag jafnvel þótt hvorki sé til að dreifa ráðningarsamningi né vaktaplani líkt og ákvæði samnings gera þó skýrt ráð fyrir. Efling – stéttarfélag kallar eftir því að ákvæðið og þær heimildir sem í því felast verði endurskoðaðar frá grunni, með þann möguleika í huga að krefjast afnáms þess hljóti sú tillaga hljómgrunn meðal félagsmanna í aðdraganda kjaraviðræðna.“Ályktunin vísar til 3. kafla Kjarasamnings milli Samtaka atvinnulífsins og Eflingar stéttarfélags og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis vegna vinnu starfsfólks í veitinga- og gistihúsum og hliðstæðri starfsemi en samningurinn er í gildi fram til loka árs 2018 líkt og aðrir helstu kjarasamningar á almennum vinnumarkaði. Lesa má nánar um samninginn á heimasíðu Eflingar hér. Samningurinn kveður skýrt á um viss skilyrði sem atvinnurekandi þarf að uppfylla hyggist hann greiða starfsmanni vaktaálag fremur en yfirvinnuálag, en vaktaálag er lægra en yfirvinnuálag. Gera þarf ráðningarsamning og vaktaáætlun þarf að liggja fyrir, ella er óheimilt að nýta sér ákvæðið.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði eftirfarandi í tilefni ályktunarinnar: „Það er staðreynd að margir veitingahúsaeigendur leyfa sér að í raun og veru stela samningsbundnum launum af starfsfólki sínu. Þetta gera þeir iðulega með því að greiða vaktaálag í stað yfirvinnu þegar það er ekki heimilt. Vaktavinnuákvæðið í samningi okkar við SA vegna starfsfólks á veitingahúsum hefur því miður orðið að skálkaskjóli fyrir kerfisbundið fúsk. Kjaramálasvið okkar er með fjölmörg dæmi þar sem það er augljóst að atvinnurekendur eru vísvitandi að misnota ákvæðið. Við höfum þurft að leiðrétta launaútreikning fyrir hvern starfsmanninn á fætur öðrum hjá sama atvinnurekanda. Þegar vilji til að uppfylla ákvæði samninga er ekki fyrir hendi og þau eru kerfisbundið misnotuð er augljóst að það þarf að aðhafast. Endurskoðun samninga í vetur þarf að taka þetta inn í myndina, annað kemur ekki til greina.“
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may affect your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. These cookies ensure basic functionalities and security features of the website, anonymously.
Functional cookies help to perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collect feedbacks, and other third-party features.
Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.
Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.
Advertisement cookies are used to provide visitors with relevant ads and marketing campaigns. These cookies track visitors across websites and collect information to provide customized ads.