Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags auglýsir framboðsfrest vegna kosningar stjórnar félagsins fyrir kjörtímabilið 2019-2021.
Tillögur skulu vera um 7 stjórnarmenn til tveggja ára samkvæmt 10. gr. laga félagsins. Um er að ræða varaformann og ritara auk fimm meðstjórnenda.
Listi uppstillingarnefndar og trúnaðarráðs liggur frammi á skrifstofu félagsins frá og með miðvikudeginum 13. mars 2019.
Öðrum listum ber að skila á skrifstofu félagsins fyrir kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn 20. mars nk.
Fylgja skulu meðmæli 120 félagsmanna.