Efling býður tveggja daga verkfallshlé gegn staðfestingu á Kastljósstilboðinu

Efling-stéttarfélag hefur boðist til að fresta verkfallsaðgerðum í tvo sólarhringa gegn því að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veiti skriflega staðfestingu á „Kastljósstilboðinu“. Erindi þessa efnis hefur verið sent til borgarstjóra með afriti á ríkissáttasemjara.

Í Kastljósi 19. febrúar síðastliðinn ræddi borgarstjóri um 110 þúsund króna grunnlaunahækkun á samningstíma fyrir ófaglærðan Eflingarstarfsmann.  Heildstætt tilboð í þá veru hefur ekki komið fram á samningafundum þrátt fyrir athugasemdir og óskir samninganefndar Eflingar.Með erindi Eflingar til borgarstjóra fylgir tillaga að skriflegu samkomulagi milli samningsaðila. Í því er fastbundið að grunnlaun Eflingarfélaga hækki á bilinu 100-110 þúsund á samningstímanum, mest hjá lægst launuðum og minnst hjá þeim hæst launuðu.

Í samkomulaginu segir að með þessu hafi sátt náðst um grunnlaunahækkanir á samningstímanum og þá sé hægt að hefja vinnu við að ná saman um önnur atriði. Samkomulagið tekur eingöngu til grunnlauna en ekki annarra atriða, svo sem álaga, sérgreiðslna og uppbóta.Verkfalli yrði frestað í tvo sólarhringa, frá því klukkan 00:01 á miðvikudag til klukkan 23:59 á fimmtudag næstkomandi.

Erindið var sent til  borgarstjóra klukkan 11:00 og er gefinn frestur til svars til klukkan 16:00 í dag, 3. mars.

„Þetta samkomulag myndi staðfesta það sem borgarstjóri hefur sjálfur lagt fram í umræðunni, það er að segja að Eflingarfélögum á lægstu launum standi til boða 20 þúsund grunnlaunahækkun umfram Lífskjarasamninginn. Við höfum sagt að slíkt tilboð myndi færa okkur í samkomulagsátt og viljum með þessu sýna að okkur er alvara með því. Við göngum út frá því að borgarstjóra hafi líka verið alvara og sé tilbúinn að sýna það í verki. Svo verður að koma í ljós hvernig gengur að ná saman um önnur atriði,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Samkomulagið eins og Efling lagði það fram við borgarstjóra