Kominn tími til að borgin sýni að henni sé alvara

Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Reykjavíkurborg samþykktu einróma á fjölmennum fundi sem haldinn var í Gamla bíó í dag eftirfarandi ályktun:Við erum ófaglærðir starfsmenn Reykjavíkurborgar, í fjölbreyttum störfum við sorphirðu, viðhald, umönnun og menntun barna, aldraðra og fatlaðra, þrif, eldamennsku og fleira.Við sinnum grunnþjónustu sem borgarbúar geta ekki lifað án. Þetta hafa verkfallsaðgerðirnar okkar sýnt.Við erum með lægstu heildarlaun allra á íslenskum vinnumarkaði.Með því að ganga í störf faglærðra spörum við Reykjavíkurborg árlega um milljarð á ári, eingöngu í leikskólakerfinu.Við krefjumst þess að borgarstjórnarmeirihlutinn og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri standi við orð sín um að leiðrétta kjör láglaunafólks og sögulega vanmetinna kvennastétta.Samninganefnd okkar hefur hvað eftir annað lagt fram vel útfærðar og skynsamlegar tillögur um hvernig eigi að framkvæma þetta. Það er með öllu óskiljanlegt hvers vegna borgin hafnar þeim tillögum hverjum á fætur annarri.Við höfnum þeim leik borgarinnar að borgarstjóri fari með fagurgala í fjölmiðlum en að samninganefnd borgarinnar bjóði svo samninganefnd Eflingarfélaga lausnir sem einungis taka til brots okkar félagsmanna og með kvöðum og skilyrðum.Það er kominn tími fyrir borgina að sýna að henni sé alvara. Á borðinu liggur tillaga að samkomulagi sem er í samræmi við yfirlýsingar borgarstjóra sjálfs. Við styðjum samninganefnd Eflingar í því að bjóða að fresta verkfalli í tvo sólarhringa gegn því að samkomulagið verði undirritað.Við stöndum saman og styðjum samninganefndin okkar alla leið.Borgin er í okkar höndum!