Sextíu trúnaðarmenn Eflingar á vinnustöðum Reykjavíkurborgar hafa sent frá sér stuðnings- og samstöðuyfirlýsingu með öðrum Eflingarfélögum innan Sambands íslenskra sveitarfélaga, þ.e. í störfum fyrir Kópavogi, Mosfellsbæ, Hveragerði, Ölfus og á Seltjarnarnesbæ.Í yfirlýsingunni minna trúnaðarmennirnir á þann stuðning sem borgarstarfsmenn Eflingar fundu fyrir í baráttu sinni, sem endaði með undirritun samnings við Reykjavíkurborg þann 10. mars síðastliðinn. Þeir segja að félagar þeirra í verkfalli hjá sveitarfélögum eigi inni sama stuðning.Trúnaðarmennirnir gagnrýna Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir að neita starfsfólki sveitarfélaga um sams konar kjarabætur og þær sem starfsmenn borgarinnar og ríkisins hafa fengið.„Það er mikill misskilningur ef sveitarfélögin halda að þau geti svikið láglaunafólk um kjarabætur jafnvel þótt kastljós fjölmiðla sé á öðrum atburðum. Um það verður aldrei sátt og við það verður aldrei unað,“ segir í yfirlýsingunni.Trúnaðarmennirnir lýsa sig tilbúna að leggja sín lóð á vorgarskólar, „með fjöldann og samstöðuna að vopni, til að tryggja ásættanlega niðurstöðu fyrir félaga okkar.“Þetta eru lokaorð yfirlýsingarinnar: „Verði ekki samið fljótt og á sanngjörnum forsendum við félaga okkar þá erum við reiðubúin að skoða allar aðgerðir til stuðnings við félaga okkar.“Félagsmenn Eflingar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus hafa verið í ótímabundnu verkfalli síðan 9. mars. Efling hefur samið um hófsama leiðréttingu á kjörum lægstu launuðu og sögulega vanmetinna kvennastétta í samningi við ríkið frá 7. mars og við Reykjavíkurborg frá 10. mars. Krafa Eflingarfélaga hjá sveitarfélögunum er um kjarasamning á sömu nótum.
Yfirlýsingin í heild sinni:
Við lýsum yfir samstöðu með félögum okkar hjá sveitarfélögunumVið trúnaðarmenn Eflingar hjá Reykjavíkurborg lýsum yfir samstöðu með félögum okkar í Eflingu sem nú eru í verkfalli hjá öðrum sveitarfélögum.Við höfum staðið í sögulegri og erfiðri kjarabaráttu, þar með talið löngu verkfalli, til að fá fram leiðréttingu á kjörum okkar gagnvart Reykjavíkurborg. Það hvarflaði aldrei að okkur að félagar okkar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ og öðrum sveitarfélögum á félagssvæði Eflingar yrðu sviknir um sams konar kjaraleiðréttingar. Þeir vinna sömu störf og við, innan sama starfsmatskerfis og við, á sama atvinnusvæði og við, og innan vébanda sama stéttarfélags og við. Þeir eru láglaunafólk og að stærstum hluta konur, eins og við.Við lýsum yfir fullum stuðningi við verkfallsaðgerðir og baráttu félaga okkar hjá sveitarfélögunum. Við lýsum vanþóknun á framgöngu Sambands íslenskra sveitarfélaga við þá. Bæði ríkið og Reykjavíkurborg hafa komið til móts við kröfur Eflingarfélaga um sérstaka leiðréttingu lægstu launa og kjara sögulega vanmetinna kvennastétta. Samband íslenskra sveitarfélaga sker sig nú eitt frá stofnunum hins opinbera í kjarasamningsgerð við láglaunafólk á Höfuðborgarsvæðinu. Við krefjumst þess að Samband íslenskra sveitarfélaga geri við þá samning sem felur í sér sams konar kjarabætur og þær sem við sömdum um við Reykjavíkurborg.Við fordæmum harðlega þá hræsni sem felst í því að Kópavogsbær krefji skólaliða um að mæta til starfa á verkfallsundanþágum vegna veirufaraldurs til að þrífa grunnskóla á sama tíma og bærinn neitar að semja á sanngjörnum og eðlilegum forsendum við starfsmenn.Við fundum fyrir miklum stuðningi samfélagsins í okkar baráttu. Félagar okkar hjá sveitarfélögunum eiga inni sama stuðning. Það er mikill misskilningur ef sveitarfélögin halda að þau geti svikið láglaunafólk um kjarabætur jafnvel þótt kastljós fjölmiðla sé á öðrum atburðum. Um það verður aldrei sátt og við það verður aldrei unað.Við erum tilbúin að leggja okkar lóð á vogarskólar, með fjöldann og samstöðuna að vopni, til að tryggja ásættanlega niðurstöðu fyrir félaga okkar.Verði ekki samið fljótt og á sanngjörnum forsendum við félaga okkar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og hjá Sveitarfélaginu Ölfus þá erum við reiðubúin að skoða allar aðgerðir til stuðnings við félaga okkar.Yfirlýsing samþykkt af 60 trúnaðarmönnum Eflingar hjá Reykjavíkurborg
- Andrea Jóhanna Helgadóttir
- Anna Björk Ágústsdóttir
- Anna Ólafía Grétarsdóttir
- Arnar Þór Sigríðarson
- Ásdís Margrét Magnúsdóttir
- Ásthildur Kolbeins
- Benedikt Birgisson
- Bjarki Garðarsson
- Björk Sigurþórsdóttir
- Bylgja Haraldsdóttir
- Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir
- Edda Rós Örnólfsdóttir
- Elín Jónsdóttir
- Emil Örvar Jónsson
- Friðjón Víðisson
- Gréta Guðný Snorrradóttir
- Guðbjörg Ásta Indriðadóttir
- Guðbjörg Björnsdóttir
- Guðbjörg Gísladóttir
- Guðbjörg Jóna Pálsdóttir
- Guðfinna Albertsdóttir
- Guðríður Anna Jóhannesdóttir
- Harpa Ásgeirsdóttir
- Helga Björnsdóttir
- Herdís Lovísa Magnúsdóttir
- Hólmfríður Vigdís Sævarsdóttir
- Hrönn Bjarnþórsdóttir
- Jenný Olga Pétursdóttir
- Jolita Varaniute
- Jón Helgi Guðbjörnsson
- Jóna Karen Jensdóttir
- Katrín Hólm Árnadóttir
- Kolbrún Íris Káradóttir
- Kolbrún Valvesdóttir
- Kolfinna Elíasdóttir
- Ksenija Redcenkova
- Lilja Eiríksdóttir
- Magnea Guðný Ferdinandsdóttir
- Magnús Emil Bech
- Magnús Freyr Magnússon
- Margrét Andrea Pétursdóttir
- Margrét Halldórsdóttir
- Margrét Ósk Hjartardóttir
- Michael Bragi Whalley
- Monika M. Rzedowska-Nosek
- Níels Jónsson
- Oddný Ófeigsdóttir
- Óli Pétur Benediktsson
- Pétur Óskar Pétursson
- Ragnheiður I Sigurgeirsdóttir
- Ragnheiður Sara Th. Sörensen
- Regína Laufdal Aðalsteinsdóttir
- Sigita Halldórsson
- Steinunn Másdóttir
- Sunna Ýr Einarsdóttir
- Svanhvít Óladóttir
- Thelma Björk Brynjólfsdóttir
- Þórhildur G Jóhannesdóttir
- Þórhildur Svavarsdóttir
- Vania Valentinova Koleva