Trúnaðarmenn hjá Reykjavíkurborg lýsa yfir stuðningi við Eflingarfélaga hjá öðrum sveitarfélögum

20. 03, 2020

Sextíu trúnaðarmenn Eflingar á vinnustöðum Reykjavíkurborgar hafa sent frá sér stuðnings- og samstöðuyfirlýsingu með öðrum Eflingarfélögum innan Sambands íslenskra sveitarfélaga, þ.e. í störfum fyrir Kópavogi, Mosfellsbæ, Hveragerði, Ölfus og á Seltjarnarnesbæ.Í yfirlýsingunni minna trúnaðarmennirnir á þann stuðning sem borgarstarfsmenn Eflingar fundu fyrir í baráttu sinni, sem endaði með undirritun samnings við Reykjavíkurborg þann 10. mars síðastliðinn. Þeir segja að félagar þeirra í verkfalli hjá sveitarfélögum eigi inni sama stuðning.Trúnaðarmennirnir gagnrýna Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir að neita starfsfólki sveitarfélaga um sams konar kjarabætur og þær sem starfsmenn borgarinnar og ríkisins hafa fengið.„Það er mikill misskilningur ef sveitarfélögin halda að þau geti svikið láglaunafólk um kjarabætur jafnvel þótt kastljós fjölmiðla sé á öðrum atburðum. Um það verður aldrei sátt og við það verður aldrei unað,“ segir í yfirlýsingunni.Trúnaðarmennirnir lýsa sig tilbúna að leggja sín lóð á vorgarskólar, „með fjöldann og samstöðuna að vopni, til að tryggja ásættanlega niðurstöðu fyrir félaga okkar.“Þetta eru lokaorð yfirlýsingarinnar: „Verði ekki samið fljótt og á sanngjörnum forsendum við félaga okkar þá erum við reiðubúin að skoða allar aðgerðir til stuðnings við félaga okkar.“Félagsmenn Eflingar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfus hafa verið í ótímabundnu verkfalli síðan 9. mars. Efling hefur samið um hófsama leiðréttingu á kjörum lægstu launuðu og sögulega vanmetinna kvennastétta í samningi við ríkið frá 7. mars og við Reykjavíkurborg frá 10. mars. Krafa Eflingarfélaga hjá sveitarfélögunum er um kjarasamning á sömu nótum. 

Yfirlýsingin í heild sinni:

Við lýsum yfir samstöðu með félögum okkar hjá sveitarfélögunumVið trúnaðarmenn Eflingar hjá Reykjavíkurborg lýsum yfir samstöðu með félögum okkar í Eflingu sem nú eru í verkfalli hjá öðrum sveitarfélögum.Við höfum staðið í sögulegri og erfiðri kjarabaráttu, þar með talið löngu verkfalli, til að fá fram leiðréttingu á kjörum okkar gagnvart Reykjavíkurborg. Það hvarflaði aldrei að okkur að félagar okkar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ og öðrum sveitarfélögum á félagssvæði Eflingar yrðu sviknir um sams konar kjaraleiðréttingar. Þeir vinna sömu störf og við, innan sama starfsmatskerfis og við, á sama atvinnusvæði og við, og innan vébanda sama stéttarfélags og við. Þeir eru láglaunafólk og að stærstum hluta konur, eins og við.Við lýsum yfir fullum  stuðningi við verkfallsaðgerðir og baráttu félaga okkar hjá sveitarfélögunum. Við lýsum vanþóknun á framgöngu Sambands íslenskra sveitarfélaga við þá. Bæði ríkið og Reykjavíkurborg hafa komið til móts við kröfur Eflingarfélaga um sérstaka leiðréttingu lægstu launa og kjara sögulega vanmetinna kvennastétta. Samband íslenskra sveitarfélaga sker sig nú eitt frá stofnunum hins opinbera í kjarasamningsgerð við láglaunafólk á Höfuðborgarsvæðinu. Við krefjumst þess að Samband íslenskra sveitarfélaga geri við þá samning sem felur í sér sams konar kjarabætur og þær sem við sömdum um við Reykjavíkurborg.Við fordæmum harðlega þá hræsni sem felst í því að Kópavogsbær krefji skólaliða um að mæta til starfa á verkfallsundanþágum vegna veirufaraldurs til að þrífa grunnskóla á sama tíma og bærinn neitar að semja á sanngjörnum og eðlilegum forsendum við starfsmenn.Við fundum fyrir miklum stuðningi samfélagsins í okkar baráttu. Félagar okkar hjá sveitarfélögunum eiga inni sama stuðning. Það er mikill misskilningur ef sveitarfélögin halda að þau geti svikið láglaunafólk um kjarabætur jafnvel þótt kastljós fjölmiðla sé á öðrum atburðum. Um það verður aldrei sátt og við það verður aldrei unað.Við erum tilbúin að leggja okkar lóð á vogarskólar, með fjöldann og samstöðuna að vopni, til að tryggja ásættanlega niðurstöðu fyrir félaga okkar.Verði ekki samið fljótt og á sanngjörnum forsendum við félaga okkar hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og hjá Sveitarfélaginu Ölfus þá erum við reiðubúin að skoða allar aðgerðir til stuðnings við félaga okkar.Yfirlýsing samþykkt af 60 trúnaðarmönnum Eflingar hjá Reykjavíkurborg

  1. Andrea Jóhanna Helgadóttir
  2. Anna Björk Ágústsdóttir
  3. Anna Ólafía Grétarsdóttir
  4. Arnar Þór Sigríðarson
  5. Ásdís Margrét Magnúsdóttir
  6. Ásthildur Kolbeins
  7. Benedikt Birgisson
  8. Bjarki Garðarsson
  9. Björk Sigurþórsdóttir
  10. Bylgja Haraldsdóttir
  11. Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir
  12. Edda Rós Örnólfsdóttir
  13. Elín Jónsdóttir
  14. Emil Örvar Jónsson
  15. Friðjón Víðisson
  16. Gréta Guðný Snorrradóttir
  17. Guðbjörg Ásta Indriðadóttir
  18. Guðbjörg Björnsdóttir
  19. Guðbjörg Gísladóttir
  20. Guðbjörg Jóna Pálsdóttir
  21. Guðfinna Albertsdóttir
  22. Guðríður Anna Jóhannesdóttir
  23. Harpa Ásgeirsdóttir
  24. Helga Björnsdóttir
  25. Herdís Lovísa Magnúsdóttir
  26. Hólmfríður Vigdís Sævarsdóttir
  27. Hrönn Bjarnþórsdóttir
  28. Jenný Olga Pétursdóttir
  29. Jolita Varaniute
  30. Jón Helgi Guðbjörnsson
  31. Jóna Karen Jensdóttir
  32. Katrín Hólm Árnadóttir
  33. Kolbrún Íris Káradóttir
  34. Kolbrún Valvesdóttir
  35. Kolfinna Elíasdóttir
  36. Ksenija Redcenkova
  37. Lilja Eiríksdóttir
  38. Magnea Guðný Ferdinandsdóttir
  39. Magnús Emil Bech
  40. Magnús Freyr Magnússon
  41. Margrét Andrea Pétursdóttir
  42. Margrét Halldórsdóttir
  43. Margrét Ósk Hjartardóttir
  44. Michael Bragi Whalley
  45. Monika M. Rzedowska-Nosek
  46. Níels Jónsson
  47. Oddný Ófeigsdóttir
  48. Óli Pétur Benediktsson
  49. Pétur Óskar Pétursson
  50. Ragnheiður I Sigurgeirsdóttir
  51. Ragnheiður Sara Th. Sörensen
  52. Regína Laufdal Aðalsteinsdóttir
  53. Sigita Halldórsson
  54. Steinunn Másdóttir
  55. Sunna Ýr Einarsdóttir
  56. Svanhvít Óladóttir
  57. Thelma Björk Brynjólfsdóttir
  58. Þórhildur G Jóhannesdóttir
  59. Þórhildur Svavarsdóttir
  60. Vania Valentinova Koleva