Kynningarfundur um samning Eflingar við SFV verður haldinn á 4. hæð í húsakynnum Eflingar við Guðrúnartún 1 kl. 17.00 þriðjudaginn 30. júní.
Á fundinum mun Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins, greina frá efni samningsins í stórum dráttum.
Að framsögu lokinni gefst fundargestum tækifæri til að varpa fram spurningum til frummælenda og taka þátt í umræðum.
Kosning um samninginn fer fram á vef Eflingar frá hádegi mánudagsins 29. júní fram að hádegi fimmtudagsins 2. júlí.
Félagsmenn innan SFV eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.