Samninganefndir Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu undirrituðu 18. júní kjarasamning með fyrirvara um samþykki félagsmanna.Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hefst klukkan 12:00 á hádegi mánudaginn 29. júní og lýkur kl. 12:00 á hádegi fimmtudaginn 2. júlí.Atkvæðisrétt eiga þeir félagsmenn Eflingar sem starfa á hjúkrunarheimilum sem veitt hafa Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu samningsumboð.[learn_more caption=“Kjarasamningur Eflingar og SFV nær til félagsmanna Eflingar sem vinna á eftirtöldum stöðum.“]
- Dvalarheimilinu Ás í Hveragerði
- Grund Reykjavík
- Mörk hjúkrunarheimili Reykjavík
- Hrafnistu Laugarási, Reykjavík
- Hrafnistu Boðaþingi, Kópavogi
- Hrafnistu Skógarbær, Reykjavík
- Hrafnista Sléttuvegi, Reykjavík
- Sjálfsbjargarheimilinu
- Sunnuhlíð, Kópavogi
- Seltjörn, Seltjarnarnesi
- Sóltúni Reykjavík
- Eir Reykjavík
- Skjól Reykjavík
- Hamrar Mosfellsbæ
- Hlíðarbær Reykjavík
- Múlabær Reykjavík
- Fríðuhúsi
- Maríuhúsi
- Drafnarhús
- S.Á.Á. Reykjavík
[/learn_more]Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki aðgang að atkvæðagreiðslunni, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar, í gegnum netfangið kjorskra@efling.is eða síma 510 7500, fram til loka kjörfundar og fengið sig færðan á kjörskrá enda leggi viðkomandi fram nauðsynleg gögn (ráðningarsamning og/eða launaseðil frá launagreiðanda).Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði.Sjá kynningarefni.