Krafa um átak í upplýsingamiðlun til aðflutts vinnuafls vegna Covid-19

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hefur sent erindi til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem þess er krafist að úrbætur verði gerðar á upplýsingamiðlun til erlends vinnuafls á Íslandi vegna Covid-19Afrit var einnig sent til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Ölmu Möller, landlæknis.Efni: krafa Eflingar um átak í upplýsingamiðlun til aðflutts vinnuafls vegna Covid-19.Í glímunni við Covid-19 skipta réttar upplýsingar og fumlaus viðbrögð höfuðmáli. Stjórnvöld eiga að tryggja að vísindalegar og faglegar ákvarðanir séu í fyrirrúmi þegar kemur að ákvörðunum um hvað fólkið sem dvelur á Íslandi skuli gera til að tryggja heilsu sína og annarra. Einnig eiga stjórnvöld að tryggja að bestu mögulegu upplýsingar um almennar smitvarnir og viðmið almannavarna hverju sinni berist hratt og örugglega til allra þátttakenda í samfélaginu.Stjórnvöld hafa að mörgu leyti staðið sig vel í þessu verkefni, haldið reglulega blaðamannafundi og miðlað upplýsingum á vef landlæknis og almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra www.covid.is. Sá misbrestur hefur þó verið á vinnubrögðum upplýsingateymis stjórnvalda að oft og einatt hefur fólk með annað móðurmál en íslensku þurft að bíða dögum saman eftir þýðingum á nýjustu upplýsingum á vefnum. Þegar þetta bréf er ritað, að morgni 5. ágúst, er ekki enn búið að uppfæra upplýsingar á pólsku á vefnum www.covid.is. Þar er ennþá fjallað um tímabilið frá 15. júní til 31. ágúst; samkomubann er fyrir fleiri en 500 manneskjur, 2 metra reglan er valfrjáls og engar upplýsingar er að finna um notkun á andlitsgrímum.Aðflutt fólk á Íslandi telur hátt í 50.000 manneskjur. Þær eru virkir þátttakendur í íslensku samfélagi og þar af leiðandi ómissandi hlekkur í virkum smitvörnum almennings. Þessu hlutverki sínu getur fólk þó ekki gegnt nema með greiðum upplýsingum um smitvarnir. Einnig vil ég benda á að hátt í 15.000 ferðamenn með erlent móðurmál dveljast hér á landi hverju sinni í sumar. Margir þeirra dvelja á stöðum og njóta þjónustu aðflutts vinnuafls á ferðalögum sínum um landið. Okkur öllum ætti því að vera ljóst hversu mikilvægt er að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum á erlendum tungumálum.Með hliðsjón af ofangreindu krefst Efling þess að stjórnvöld geri gangskör að því að tryggja skilvirkari vinnubrögð við birtingu mikilvægra upplýsinga á erlendum tungumálum í tengslum við Covid-19 á vef sínum og í gegnum aðra miðla. Einnig viljum við benda á að góð leið til að ná betri árangri væri að senda mikilvægar smitvarnarupplýsingar í tölvupósti til þeirra sem eru í tengslum við aðflutt fólk, m.a. almenn félagasamtök og verkalýðsfélög.Við erum ekki öll almannavarnir ef upplýsingarnar ná ekki til okkar allra.Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður