Vegna hertra reglna um samkomur verður viðburðurinn Réttindi og skyldur á vinnumarkaði sem á að fara fram í kvöld kl. 19.00 einungis á netinu.Vinsamlegast ýtið á þennan hlekk til að taka þátt í námskeiðinu: https://www.facebook.com/efling.isNámskeiðið er liður í því að veita félögum í Eflingu upplýsingar um réttindi þeirra á vinnumarkaði og hjá stéttarfélaginu. Sérfræðingar Eflingar í kjaramálum fara yfir helstu atriði kjarasamninga, s.s. veikindarétt, uppsagnarfrest og fleira ásamt því að kynna réttindi félagsmanna í sjóðum félagsins.