Bjuggu við hryllilegar aðstæður

Aðalmeðferð hófst í máli fjögurra Rúmena sem störfuðu hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þeir hafa, með stuðningi Eflingar, stefnt starfsmannaleigunni og fyrirtækinu Eldum rétt, sem þeir voru leigðir til, vegna ólöglegs frádráttar launa og vanvirðandi meðferðar.Einnig snýst málið um mögulega mismunun starfsmannanna hjá Eldum rétt, enda bar fyrirtækið ábyrgð á að tryggja að aðkeyptir starfsmenn nytu að minnsta kosti þeirra kjara sem fastráðnir starfsmenn nutu. Enginn fulltrúi frá Eldum rétt gaf skýrslu í morgun.Fjórmenningarnir gáfu skýrslu í síma og spurningum var einnig beint til Höllu Rutar Bjarnadóttur, forsvarsmanns Manna í vinnu, og Ragnars Ólasonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Eflingar, sem hefur unnið að málinu frá upphafi þess. Starfsmennirnir lýstu ömurlegum húsakosti og þeim peningaskorti sem þeir lifðu við. „Ég lifði á pakkanúðlum fyrst um sinn,“ svaraði einn, aðspurður hvernig hann hefði lifað fyrstu vikurnar hjá fyrirtækinu. „Ég fékk litlar fyrirframgreiðslur, fór í [hjálparstofnun], vinirnir hjálpuðust að,“ sagði annar.Hvernig var að vinna hjá Mönnum í vinnu? „Tráma,“ sagði einn. „Martröð,“ sagði annar.Tilgangur laganna sem stefnan byggir á er að ekki sé grafið undan réttindum á íslenskum vinnumarkaði með útleigðum starfsmönnum sem njóta verri kjara og lakari réttinda en aðrir sem hér vinna. Starfsmenn Manna í vinnu bjuggu tugum saman í óleyfisíbúðum, þar sem leiga var dregin frá launum þeirra. „Þessar aðstæður eru auðvitað hryllilegar,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. „En fyrir sumum eru þær bara viðskiptatækifæri og samkeppnisforskot. Þetta er ólíðandi fyrir starfsmennina og hættulegt fyrir allt vinnandi fólk.“Menn í vinnu hefur verið lýst gjaldþrota, en Halla Rut, sem stýrði fyrirtækinu, sagði dómstólnum að „grátandi-Rúmena-málið“ hefði eyðilagt fyrirtækið. Þó hafði það verið mánuðum saman í vanskilum á lífeyrisgjöldum starfsfólks.Spurningin nú er að hve miklu leyti dómari mun taka á þeirri vanvirðandi meðferð og þeim stórhættulegu aðstæðum sem starfsfólk var látið búa í, og að hve miklu leyti það verður dæmt á spurningunni um krónur og aura í vangoldin laun. Vænta má dóms eftir nokkrar vikur.