Efling efnir til ljósmyndasamkeppni meðal félagsmanna. Myndirnar eiga að endurspegla frí innanlands og því tilvalið að nota sumarbústaðaferðina til myndatöku.
Félagsmenn verða að vera búnir að skila inn myndum í síðasta lagi 31. ágúst 2021.
Skila þarf inn mynd á netfangið efling@efling.is með stuttri lýsingu um myndefnið og nafni þátttakanda ásamt símanúmeri.
Í vinning er 25.000 kr. og verður myndin birt í miðlum Eflingar.
Dómnefnd mun velja vinningshafa.
Tilkynnt verður um vinningshafa þann 10. september 2021.
![](https://www.efling.is/wp-content/uploads/2021/06/vinningsmynd-ljosmyndasamkeppni-Orlofsblads-vefur-1024x652.jpg)