Stjórnarkosning í Eflingu-stéttarfélagi er hafin og stendur til kl. 20.00 hinn 15. febrúar n.k.
Atkvæðisrétt eiga allir fullgildir félagsmenn í Eflingu-stéttarfélagi.
Kosningin er rafræn. Til að kjósa þarf rafræn skilríki.
Þau sem vilja ekki kjósa rafrænt eða hafa ekki rafræn skilríki geta mætt á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1 í Reykjavík eða á skrifstofuna í Hveragerði að Breiðumörk 19 og greitt atkvæði.
Allar nánari upplýsingar má nálgast hér.