Ljósmyndasamkeppni Eflingar

Efling minnir á ljósmyndasamkeppni meðal félagsmanna. Myndirnar eiga að endurspegla frí innanlands og því tilvalið að nota sumarbústaðaferðina til myndatöku.

Félagsmenn verða að vera búnir að skila inn myndum í síðasta lagi 31. ágúst 2022.

Skila þarf inn mynd á netfangið efling@efling.is með stuttri lýsingu um myndefnið og nafni þátttakanda ásamt símanúmeri.

Í vinning er 40.000 kr. og verður myndin birt í miðlum Eflingar.

Dómnefnd mun velja vinningshafa.

Tilkynnt verður um vinningshafa þann 9. september 2022.