Boðað er til sameiginlegs félags- og trúnaðarráðsfundar fimmtudaginn 17. nóvember. Á fundinum verður fjallað um kjaraviðræður og störf samninganefndar Eflingar. Þá mun formaður Samtaka leigjenda á Íslandi halda kynningu á stöðu leigjenda og á starfsemi samtakanna. Fundurinn er um leið fundur í trúnaðarráði Eflingar.
- Dagsetning: Fimmtudagur 17. nóvember 2022.
- Tími: Fundur hefst stundvíslega klukkan 18:00, húsið opnar klukkan 17:30.
- Staður: Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.
Dagskrá:
- Kosning í uppstillingarnefnd.
- Kosning í kjörstjórn.
- Kjaraviðræður og störf samninganefndar (Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar).
- Staða leigjenda og starf Samtaka leigjenda á Íslandi (Guðmundur Hrafn Arngrímsson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi).
- Önnur mál.
Boðið verður upp á léttar veitingar í anddyri. Textatúlkun á skjá milli ensku og íslensku.
Félagar eru beðnir að staðfesta komu sína með eyðublaðinu hér: Staðfesta komu 17. nóv.