Verkfallsaðgerðir á Íslandshótelum samþykktar með afgerandi meirihluta

30. 01, 2023

Samninganefnd Eflingar fagnar hugrekki verkafólks á Íslandshótelum og samþykkir næstu lotu verkfallsboðana.

Eflingarfélagar hjá Íslandshótelum hafa með afgerandi meirihluta samþykkt ótímabundna vinnustöðvun á öllum hótelum keðjunnar í Reykjavík. Var boðunin samþykkt með 124 atkvæðum gegn 58 mótatkvæðum og 7 sem óskuðu að taka ekki afstöðu. Af þeim sem greiddu atkvæði voru því 65% sem samþykktu boðunina. Samtals kusu 189 af þeim 287 sem voru á kjörskrá og var kjörsókn því 66% prósent sem er mun meira en sést hefur í verkfallskosningum félagsins á síðustu árum. Hefst vinnustöðvun að óbreyttu þriðjudaginn 7. febrúar.

Stjórnendur Íslandshótela beittu starfsfólk miklum þrýstingi og ólögmætum hótunum um tekjumissi tækju þau afstöðu með verkfalli. Er það skýrt brot á ákvæðum laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Var allt starfsfólk skikkað á sérstaka fundi þar sem stjórnendur ræddu um kjaradeilu Eflingar við SA á villandi og einhliða hátt, og komu hótunum sínum í þá veru óspart á framfæri. Bárust félaginu margar kvartanir frá félagsfólki vegna þessa.

Ríkissáttasemjari samþykkti sérstaka miðlunartillögu sem tímasett var til að koma í veg fyrir að félagsfólk Eflingar hjá Íslandshótelum fengi að nýta sér rétt sinn til verkfalls. Hann endurtók jafnframt hótanir atvinnurekenda um tekjumissi.  Tveir ráðherrar Vinstri grænna í ríkisstjórn, Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, vissu af miðlunartillögu ríkissáttasemjara áður en hún var kynnt samninganefnd Eflingar. Ráðherrarnir stigu fram opinberlega til stuðnings við miðlunartillöguna þrátt fyrir háværa gagnrýni allra heildarsamtaka launafólks á hana.

Samninganefnd fagnar hugrekki Eflingarfélaga á Íslandshótelum, sem kusu með sjálfstæðum samnings- og verkfallsrétti sínum þrátt fyrir þvingunartilburði, þrýsting og hótanir frá öllum valdamestu stofnunum íslensks samfélags.

Nefndin samþykkti frekari verkfallsboðanir á fundi sínum í kvöld og verða þær auglýstar fyrir hádegi á morgun. Um þær ríkir trúnaður þangað til.