Þetta er afstaða fyrirtækjanna til verkbanns SA

24. 02, 2023

Á þriðja hundrað félaga í Eflingu hafa svarað könnun sem félagið opnaði á vefsíðu sinni í dag. Spurt var hvaða upplýsingar fyrirtæki hafi veitt starfsfólki um hvort verkbanni Samtaka atvinnulífsins verði hlýtt eða ekki.

Samkvæmt svörum í könnuninni hafa eftirfarandi fyrirtæki lýst því við starfsfólk sitt að þau ætli ekki að taka þátt í verkbanni:

  • Góa
  • Laugar ehf. (World Class)
  • Te og kaffi
  • Nings
  • Gleðiheimar (Pítan, Aktu taktu, American Style, Blackbox o.fl.)
  • Garðlist
  • Serrano
  • KFC
  • IceTransport
  • Iðnmark (Stjörnusnakk)
  • Fagkaup
  • Vaka hf. (dráttarbílaþjónustan)
  • Gólflagnir ehf.
  • Loftorka Reykjavík
  • ÞG verktakar
  • Sómi
  • Matfugl
  • Nostra
  • Íslenska gámafélagið
  • Í einum grænum (Sölufélag garðyrkjumanna)
  • Terra umhverfisþjónusta
  • Freyja
  • Fóðurblandan
  • Gæðabakstur

Þetta eru þau fyrirtæki sem samkvæmt könnuninni hafa lýst því að þau ætli að taka þátt í verkbanni:

  • Center Hotels
  • Kea hotels
  • Dekkjahöllin
  • Össur
  • Eimskip
  • Myllan-Ora
  • Nýþrif
  • Austurlandahraðlestin
  • N1
  • Ölgerðin
  • AÞ þrif
  • Jáverk
  • Brim
  • Pizza-pizza ehf. (Dominos)
  • Aðalbón
  • Glerverk
  • Nói Siríus
  • Íslenskir aðalverktakar
  • Steypustöðin
  • Olís
  • Endurvinnslan
  • Blue Car Rental
  • Brimborg
  • Kaffitár
  • Gray Line (Allrahanda GL)

Samkvæmt könnuninni hafa eftirfarandi fyrirtæki ekki veitt starfsfólki upplýsingar um hvort þau muni taka þátt í verkbanni eða ekki:

  • Icelandair (Reykjavíkurflugvöllur)
  • Baka baka
  • Íspan
  • Metro
  • Ísfugl
  • Matartíminn
  • Coca Cola á Íslandi
  • Marel
  • Joe and the Juice
  • Samskip
  • Ístak
  • Öryggismiðstöðin
  • Securitas
  • Dagar hf.
  • Hreint ehf.
  • Ferskar kjötvörur
  • Skólamatur
  • Hopp Reykjavík
  • Kynnisferðir
  • Hópbílar
  • Innnes
  • Brauð og Co

Nöfn fyrirtækjanna eru birt með fyrirvara um að hér er um að ræða upplýsingar sem ekki koma frá fyrirtækjunum sjálfum heldur úr nafnlausum svörum félagsfólks.

Efling stéttarfélag hvetur félagsfólk til að bæta við upplýsingum með þátttöku í könnuninni:
https://www.efling.is/2023/02/verkbann-konnun/

(Listi uppfærður kl. 10:26 25.02.2023)