Verkbann er á ábyrgð SA og einstakra atvinnurekenda

22. 02, 2023

Samninganefnd Eflingar samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum í kvöld:

Með verkbanni á 21 þúsund Eflingarfélaga hafa atvinnurekendur fært vinnudeiluna á nýtt og mun alvarlegra stig en afmarkaðar verkfallsaðgerðir Eflingarfélaga hafa nokkurn tíma gert. Ákvörðun um verkbann er þvingunaraðgerð, langt fram úr öllu meðalhófi. Samtök atvinnulífsins bera alla ábyrgð á þeirri ákvörðun og afleiðingum hennar, ekki Efling.

Verkbannið er í samræmi við þá ósæmilegu afstöðu sem SA hafa til kjaraviðræðna við Eflingu, sem er að virða ekki í reynd sjálfstæðan samningsrétt félagsins og ástunda ekki samningaviðræður í góðri trú. Þess í stað styðjast SA eingöngu við þvingunaraðgerðir, þar sem treyst er beint og óbeint á inngrip ríkisvaldsins og stofnana þess.

Samninganefnd styður þá afstöðu stjórnar vinnudeilusjóðs Eflingar að ekki verði greitt úr sjóðnum vegna launataps sem orsakast af verkbanni atvinnurekenda. Verkbann atvinnurekenda er á þeirra ábyrgð, ekki Eflingar. Atvinnurekendum ber að veita starfsfólki sínu skýringar á því hvers vegna þeir telja rétt og nauðsynlegt að reka þau heim launalaus úr vinnu, hyggist þeir gera það.

Efling hefur fengið staðfest að margir atvinnurekendur hafa tilkynnt starfsfólki sínu um að þeir muni ekki framfylgja verkbanni. Jafnframt hafa SA gefið út að þau muni ekki stunda eftirlit til að þrýsta á um framfylgd verkbannsins. Þetta staðfestir að ákvörðun um að reka starfsfólk sitt heim launalaust er á ábyrgð hvers og eins atvinnurekanda. Samninganefnd hvetur félagsfólk til að ganga á eftir atvinnurekendum sínum um skýr svör við því hvort verkbanni verði fylgt og hvaða réttlætingar atvinnurekandinn gefi upp fyrir því.

Einnig samþykkti stjórn vinnudeilusjóðs Eflingar einróma á fundi sínum í kvöld eftirfarandi:

Stjórn vinnudeilusjóðs Eflingar mun hvorki auglýsa eftir né taka við umsóknum vegna tekjutaps félagsmanna sem hlotnast af fyrirhuguðu verkbanni atvinnurekanda. Atvinnurekendur bera alla ábyrgð á þeirri skömm að reka fólk launalaust heim. Vinnudeilusjóður Eflingar verður ekki nýttur til að niðurgreiða það pólitíska níðingsverk.