Verkföll í öryggisgæslu, þrifum og á hótelum samþykkt

20. 02, 2023

Eflingarfélagar hafa samþykkt verkfallsboðanir í öryggisgæslu, hjá ræstingarfyrirtækjum og á hótelum með afgerandi meirihluta í öllum tilvikum.

711 voru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni um verkfallsboðun á hótelum. Þar af greiddu 288 atkvæði með, 76 á móti og 17 tóku ekki afstöðu. Verkfall var því samþykkt með tæplega 76% atkvæða. Kjörsókn var tæp 54%.

414 voru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni um verkfallsboðun meðal öryggisvarða. Þar af greiddu 130 atkvæði með, 59 á móti og 13 tóku ekki afstöðu. Verkfall var því samþykkt með rúmlega 64% atkvæða. Kjörsókn var tæplega 49%.

909 voru á kjörskrá í atkvæðagreiðslunni um verkfallsboðun hjá ræstingarfyrirtækjum. Þar af greiddu 289 atkvæði með, 40 á móti og 20 skiluðu auðu. Verkfall var því samþykkt með tæplega 83% atkvæða. Kjörsókn var rúmlega 38%.

Samninganefnd lagði boðanirnar þrjár í dóm félagsfólks með auglýsingu þann 13. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða ótímabundnar vinnustöðvanir sem allar hefjast klukkan 12:00 á hádegi þriðjudaginn 28. febrúar.

Úrslitin má sjá í heild sinni hér að neðan.