Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur með miklum meirihluta

14. 04, 2023

Kjarasamningur Eflingar og Reykjavíkurborgar, sem undirritaður var þann 1. apríl, var samþykktur af félagsfólki sem starfar hjá borginni með miklum meirhluta. Atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag.

Já sögðu 756 eða tæp 89%.

Nei sögðu 57 eða tæp 7%.

38 eða rúm 4% tóku ekki afstöðu.

Af 2.098 sem voru á kjörskrá greiddu 851 atkvæð. Kjörsókn var því rúmlega 40%.

Kjarsamningurinn tekur því gildi.