Undirritað við Orkuveituna

28. 04, 2023

Efling – stéttarfélag hefur undirritað kjarasamning við Orkuveitu Reykjavíkur.

Um 40 Eflingarfélagar starfa undir samningnum við verkamannastörf, við störf í mötuneyti og við ræstingu. Vinna þeir ýmist hjá Orkuveitunni eða dótturfélögum.

Haldinn verður kynningarfundur um kjarasamninginn á 1. hæð í húsnæði Orkuveitunnar föstudaginn 5. maí kl. 11:30. Þar mun félagsfólk sem starfar undir samningnum greiða um hann atkvæði.

Lesa má texta samningsins hér.

Frá undirritun kjarasamningsins í húsakynnum Orkaveitunnar þann 26. apríl 2023.