Skipta réttindi launafólks á vinnumarkaði þig máli?

31. 05, 2023

Efling og Fagfélögin leita að öflugum einstakling til að sinna vinnustaðaeftirliti og fylgjast með að aðstæður á vinnustöðum séu í samræmi við lög og reglur. Markmið starfsins er að koma í veg fyrir brotastarfsemi á félagssvæðum stéttarfélaganna. Um er að ræða 100% starf. Starfsstöð er á Stórhöfða 29-31, 110 Reykjavík.

Sótt er um í gegnum umsjónarkerfi alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnustaðaheimsóknir, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.
  • Skipulag vinnustaðheimsókna um allt landí samtarfi við aðra eftirlitsfulltrúa.
  • Byggja upp og efla markvisst vinnustaðeftirlit og samstarf við aðra eftirlitsfulltrúa.
  • Samskipti við þá aðila er fara með málefni vinnumarkaðarins.
  • Skráning og eftirfylgni.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Þekking á íslenskum vinnumarkaði
  • Tungumálakunnátta, íslenska og enska. Pólska og/eða rússneska er kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.
  • Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt.
  • Almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuvikunnar
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Mötuneyti