Matur og menning – smakkaðu mat frá upprunalöndum Eflingarfélaga

18. 09, 2023

Efling býður áhugasömum félögum að vera með í skemmtiviðburðinum Matur og menning sem haldinn verður sunnudaginn 24. september. Á viðburðinum bjóða Eflingarfélagar upp á mat frá sínu upprunalandi. Þar er af nógu taka því Eflingarfélagar frá 12 mismunandi upprunalöndum hafa þegar skráð sig til að elda mat!

Húsið verður opnað fyrir gestum klukkan 14:00 og mun viðburðurinn standa til klukkan 16:00. Tímasetningin er sunnudagur 24. september og staðsetning er Félagsheimili Eflingar, 4. hæð í Guðrúnartúni 1.

Maturinn verður á boðstólum án greiðslu og ókeypis er á viðburðinn fyrir Eflingarfélaga, en það er nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram. Leyfilegt er að taka með sér gesti. Skráið fjöldann sem kemur með ykkur í eyðublaðið hér að neðan (hámark 5).

VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR OG PLÁSSLEYSIS ER LOKAÐ FYRIR FLEIRI SKRÁNINGAR AÐ SVO STÖDDU

Upplýsingar fyrir þá sem vilja koma með mat:

  • Ennþá opið fyrir skráningar til hádegis 20. september.
  • Félagið greiðir efniskostnað við matargerð gegn skilum á kvittun.
  • Efling útvegar diska, hnífapör, servíettur og drykki.
  • Þið fáið nánari upplýsingar sendar í gegnum tölvupóst.