Kvennaverkfall 2023

13. 10, 2023

Alþýðusamband Íslands ásamt fleiri aðilum stendur fyrir kvennaverkfalli sem haldið verður 24. október 2023.

Alþýðusambandið hvetur konur og kynsegin fólk til að leggja niður bæði launuð og ólaunuð störf þann dag, allan daginn.

Samstöðufundur verður haldinn á Arnarhóli klukkan 14:00 á degi verkfallsins.

Nánari upplýsingar um verkfallið og samstöðufundinn eru á vefnum kvennaverkfall.is og hjá Alþýðusambandi Íslands.

Hér fylgir hvatningarbréf frá skipuleggjendum verkfallsins.