Miðasalan fyrir jólaballið er hafin!

23. 11, 2023

Nú er miðasalan fyrir jólaballið í fullum gangi!

Árlegt jólaball Eflingar verður haldið laugardaginn 16. desember í Gullhömrum í Grafarholti kl. 15.00.

Jólasveinar mæta á svæðið, hljómsveit hússins sér um dans og söng í kringum jólatréð og boðið verður upp á veitingar og sætindi.

Miðinn verður á 500 kr stykkið og hægt verður að kaupa miða á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1. Hver félagsmaður getur keypt allt að 5 miða. Einungis verður tekið við kortagreiðslum.