Skilafrestur umsókna í sjúkra- og fræðslusjóði desember 2023

Skila verður umsóknum, vottorðum og öðrum gögnum til sjúkrasjóða og fræðslusjóða Eflingar í síðasta lagi sunnudaginn 10. desember n.k. svo hægt verði að greiða út styrki í desember.

Útborgun styrkja og dagpeninga í desember 2023 er fyrirhuguð fimmtudaginn 21. desember.

Næsta greiðsla eftir það verður 10. janúar 2024.