![](https://efling.is/wp-content/uploads/2024/02/Holmavik-hus-vatn-flottmynd2-2048x1152-1-e1697547698757-edited.jpg)
Opnað verður fyrir umsóknir fyrir sumarleigu orlofshúsa 2024 þann 1. mars og hægt verður að sækja um á bókunarvef Eflingar til 20. mars.
Útleigutímabilið fyrir sumarið 2024 er frá 31. maí til 30. ágúst og aðeins vikuleiga í boði frá föstudegi til föstudags.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi. Allt félagsfólk getur sótt um, það er eingöngu punktastaða umsækjenda sem ræður niðurstöðu úthlutunar. Svör verða send í tölvupósti.