Eldri borgara kaffi Eflingar

Sunnudaginn 26. maí næstkomandi verður kaffiboð fyrir Eflingarfélaga 70 ára og eldri haldið í glæsilegum sal í Gullhömrum í Grafarholti. Húsið verður opnað kl 14:30.

Efling stéttarfélag býður gestum upp á kaffi og veitingar auk þess sem hljómsveit spilar fyrir dansi.

Eflingarfélögum er velkomið að bjóða einum gesti með sér.

Miðar á Eldri borgara kaffið eru ókeypis. Hægt verður að nálgast miða á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1 frá 13. maí til 21. maí eða þangað til miðar klárast.

Eflingarfélagi getur sótt 2 miða. Þar sem um takmarkaðan fjölda sæta er að ræða gildir sú regla að fyrstir koma, fyrstir fá.