Eldri borgara kaffi Eflingar 2025

Sunnudaginn 25. maí verður haldið glæsilegt kaffiboð fyrir Eflingarfélaga 67 ára og eldri í fallegum sal í Gullhömrum í Grafarholti. Kaffiboðið byrjar kl 14:30 en húsið verður opnað kl 14:00.

Efling stéttarfélag býður gestum upp á kaffi og veitingar auk þess sem hljómsveit spilar fyrir dansi.

Eflingarfélögum er velkomið að bjóða einum gesti með sér.

Miðar á eldri borgara kaffið eru ókeypis.

Hægt verður að nálgast miða á skrifstofu Eflingar að Guðrúnartúni 1 frá 12. maí til 23. maí eða þangað til miðar klárast.

Hver Eflingarfélagi getur sótt 2 miða. Þar sem um takmarkaðan fjölda sæta er að ræða gildir sú regla að fyrstir koma, fyrstir fá.