
Myndin sýnir vettvangsfulltrúa á leið í vinnustaðaheimsóknir í vikunni.
Efling stendur reglulega fyrir átaki til að efla trúnaðarmannakerfið, þar sem áhersla er lögð á mismunandi starfsgreinar hverju sinni – eftir því hvað er brýnast á hverjum tíma. Um þessar mundir beinist átakið að iðnaðargeiranum, það er félagsfólki sem starfar í framleiðslu, matvælaiðnaði og tengdum greinum.
Dagana 18. og 19. júní heimsótti hópur vettvangsfulltrúa vinnustaði þar sem mikilvægi trúnaðarmannastarfsins var kynnt fyrir Eflingarfélögum, og sömuleiðis útskýrt hvernig trúnaðarmannakosningar fara fram. Í hópnum voru virkir félagar úr starfi félagsins, margir hverjir trúnaðarmenn eða í trúnaðarráði. Lögð er áhersla á fjölbreytni í hópnum og að sem flest tungumál séu töluð til að tryggja að sem flestir nái tengingu við boðskapinn. Til stendur að halda áfram með vettvangsheimsóknirnar í næstu viku.
Hvað gera trúnaðarmenn?
- Hlutverk
Trúnaðarmaður er tengiliður Eflingarfélaga á vinnustað við stéttarfélagið þeirra. Hlutverk trúnaðarmanns er að gæta þess að farið sé eftir kjarasamningum og að lög og réttindi séu virt, sem og að aðstoða félagsmenn á sínum vinnustað við úrlausn réttindamála þegar við á. Trúnaðarmaðurinn miðlar upplýsingum frá félaginu til félagsmanna, og upplýsir félagið um stöðu mála á sínum vinnustað eftir því sem þörf krefur.
- Trúnaðarmaður er kjörinn fulltrúi
Starfsfólk á hverjum vinnustað kýs sér trúnaðarmann til tveggja ára í senn. Ef aðeins einn býður sig fram er viðkomandi sjálfkjörinn. Eftir kosningu fær trúnaðarmaðurinn og vinnuveitandi hans senda staðfestingu á skipun. Samkvæmt kjarasamningum þurfa trúnaðarmenn að sækja námskeið á skipunartíma sínum og ber atvinnurekanda að tryggja að þeim sé það mögulegt án launaskerðingar.
- Er enginn trúnaðarmaður á þínum vinnustað?
Ef enginn trúnaðarmaður er á þínum vinnustað og þú vilt bjóða þig fram í það hlutverk eða skipuleggja kosningu, viljum við biðja þig um að hafa samband við svið fræðslu- og félagsmála í síma 510 7500 eða senda tölvupóst á felagsmal@efling.is. Skrifstofa Eflingar aðstoðar við utanumhald og framkvæmd trúnaðarmannakosninga.
Trúnaðarmannanámskeið Eflingar
Trúnaðarmannanámskeið Eflingar veita trúnaðarmönnum fræðslu og þjálfun til að sinna hlutverki sínu. Námskeiðin fara fram einn dag í mánuði frá september til maí og eru bæði fyrir nýja og reynda trúnaðarmenn. Þau eru haldin í Félagsheimili Eflingar, Guðrúnartúni 1, þar sem boðið er upp á hádegisverð og hressingu. Námskeiðin eru að kostnaðarlausu, með túlkun á íslensku og ensku. Allir trúnaðarmenn eru sjálfkrafa skráðir og fá sendar áminningar í tölvupósti.