Nýttu þér ferðaafslætti Eflingar í sumar

16. 06, 2025
Mynd af fallegu íslensku landslagi í Þórsmörk eftir Olga Beata Swiercek. Myndin hlaut heiðurstilnefningu í ljósmyndasamkeppni Eflingar árið 2024.

Efling býður félagsfólki ekki aðeins upp á fjölda orlofshúsa víðs vegar um landið sem hægt er að leigja allan ársins hring. Orlofssjóður Eflingar býður einnig upp á ýmsa ferða- og gistiafslætti sem tilvalið er að nýta í sumarfríinu.

Icelandair ferðaafsláttur

Félagsfólki Eflingar stendur til boða að kaupa afsláttarmiða hjá Icelandair sem gildir sem inneign að upphæð 30.000 kr við pöntun á þjónustu hjá þeim. Miðinn kostar aðeins 22.000 kr til félagsfólks svo að sparnaður er töluverður fyrir þá sem geta nýtt sér þessa miða. Gjafabréfin eru seld í gegnum Mínar síður.

Gistiafsláttur innanlands

Félagsfólk sem ekki nýtir sér orlofshús Eflingar gefst kostur á niðurgreiðslu á gistingu á ferðalögum innanlands. Félagið niðurgreiðir helming reiknings, þó að hámarki 10.000 kr. Sótt er um niðurgreiðslu á gistingu inni á Mínum síðum

Útilegukortið

Efling býður félagsfólki að kaupa Útilegu kortið á frábæru verði eða á aðeins 15.000 kr. Fullt verð er 24.900 kr, svo félagsfólk getur sparað verulega með þessum kaupum. Kortið er rafrænt og veitir aðgang að u.þ.b. 42 tjaldsvæðum hringinn í kringum landið. Kortin eru seld í gegnum Mínar síður.

Veiðikortið

Félagsfólki Eflingar býðst að kaupa Veiðikortið á aðeins 6,000 kr en fullt verð er kr. 9.900 kr. Kortið er mjög hagkvæmur valkostur sem hentar jafnt veiðimönnum sem fjölskyldufólki. Með Veiðikortið í vasanum er hægt að veiða nær ótakmarkað í 36 veiðivötnum víðsvegar um landið sem og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Börn yngri en 14 ára veiða frítt með korthafa. Kortin eru seld í gegnum Mínar síður.