Í dag, 2. Febrúar 2026, fá félagsmenn Eflingar sem vinna eftir kjarasamningum Eflingar við Samband íslenskra sveitarfélaga greitt úr Félagsmannasjóði. Um er að ræða þá félagsmenn sem vinna hjá Seltjarnarnesbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfus, auk þeirra sem vinna hjá Faxaflóahöfnum sf.
Hafi félagsmaður sem á rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði skráð bankaupplýsingar sínar á Mínar síður í Total, félagakerfi Eflingar, fær hann greitt án þess að þurfa að gera nokkuð. Hins vegar er ekki hægt að greiða þeim félagsmönnum sem ekki hafa skráð bankaupplýsingar sínar í kerfið. Þeir félagsmenn sem telja að þeir eigi rétt á greiðslum úr Félagsmannasjóði, en hafa ekki fengið, ættu því að fara inn á Mínar síður og skrá bankaupplýsingar sínar á persónublaðinu í Tótal. Ef viðkomandi félagsmenn eiga rétt á greiðslum úr sjóðnum verða þær greiddar út um næstu mánaðamót.
Allir félagsmenn Eflingar eru jafnframt eindregið hvattir til að fara inn á Mínar síður í Tótal og skrá þar inn netföng sín, símanúmer og bankaupplýsingar, hafi þeir ekki gert það nú þegar. Hér má finna leiðbeiningar fyrir Mínar síður Eflingar.