Bókunarvefur Eflingar – leiðbeiningar

Vefurinn er lokaður öðrum en félagsfólki. Til að geta bókað hús á vefnum þarf að uppfylla skilyrði um m.a. félagssögu og lágmarksaldur. Kerfið gæti bent félagsfólki á að hafa samband við skrifstofu til að bóka ef þeir uppfylla ekki skilyrði um vefaðgang, sjá nánar upplýsingar hér:

Sækja um í úthlutun:

  • Til að sækja um orlofshús í úthlutun þarf að skrá sig inn á mínar síður finna „Orlofssjóður“ og smella á „sækja um“ við nýjustu úthlutun hverju sinni, fylla út og smella á „skrá umsókn“. Úthlutunartímabil eru tvö, fyrir páskana og sumartímann. Leigutímabil yfir páska er ein vika, frá miðvikudegi til miðvikudags, og sumartímabilið er 13 vikur, vikuleiga frá föstudegi til föstudags. Upplýsingar um umsóknartímabil og úthlutanir eru kynntar í upphafi árs á heimasíðu Eflingar. Skila þarf inn umsókn á auglýstum umsóknartímabilum. Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabilinu sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu umsækjenda. Svör við umsóknum berast í tölvupósti á úthlutunardegi. Munið að skrá netfang á bókunarvefinn, hægt er að skrá eða uppfæra netföng undir liðnum „aðgerðir“ og þar undir „breyta persónuupplýsingum“ .

Bóka beint laus hús:

  • Til að bóka laus orlofshús beint eftir að úthlutun er lokið og yfir vetrartímann skal velja orlofssjóður og svo orlofskerfi. Þar er hægt að sjá hvað er laust og ganga beint frá bókun og greiðslu. Yfirlitsmyndin sýnir aðeins þrjár vikur fram í tímann. Við bókun þarf að gæta þess að velja það tímabil á yfirlitsmyndinni sem á að bóka með því að velja dagsetningu á dagatalinu sem finna má vinstra megin fyrir ofan yfirlitsmyndina. Þegar dagsetning hefur verið valin, er gott að sjá hvað er laust.
  • Það er aðeins hægt að bóka bláa. Hvíta reiti er ekki hægt að bóka. Gulir reitir sýna leigutímabil sem eru lokuð vegna úthlutunar, eða ekki komið að opnun – áður en leigutímabil eru opnuð eru reitirnir ýmist gulir eða hvítir en verða bláir þegar búið er að opna og hægt að bóka hús.

Á vetrartímanum er leigutíminn sveigjanlegri og þá er hægt að bóka beint bæði helgar- og vikuleigu. Ekki er hægt að bóka staka daga, né bæta við dögum við helgarleigu. Félagsfólk þarf annað hvort að taka helgi, eða viku. Hver félagsmaður má bóka einu sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót. Athugið að það eru ekki öll húsin í útleigu yfir vetrartímann

Þegar orlofshús er bókað beint á bókunarvefnum þarf að ganga þar frá greiðslu strax með greiðslukorti. Athugið að ef greiðslan fer ekki í gegn innan klukkustundar þá fellur bókunin niður. Þegar greiðslan hefur farið í gegn er leigusamningur aðgengilegur inn á Mínum síðum undir „síðustu hreyfingar“ .