Haust- og vetrarleiga 2023-2024

Mikil aðsókn er í húsin yfir vetrartímann, sérstaklega í hús sem er stutt frá höfuðborgarsvæðinu.
Það er venjulega fullbókað um helgar u.þ.b. mánuð fram í tímann, þannig að nauðsynlegt er að
bóka tímanlega til að fá bústað á þeim tíma sem hentar.


Vetrartímabilið er frá 1. september 2023 til 31. maí 2024. Þá er hægt að bóka bæði helgar- og
vikuleigu. Þó er aðeins vikuleiga í boði yfir hátíðarnar, þ.e. jól og áramót, og svo páska. Jóla- og
áramótavikurnar í ár eru annars vegar 20.12- 27.12.2023 og hins vegar 27.12.2023 – 03.01.2024.
Bókanir fyrir jól og áramót hefjast 13. september kl 8:15. Aðeins er hægt að velja annað hvort jóla
eða áramótaviku.


Opnað er fyrir vetrartímabilið í tveimur skrefum.
Opnað verður fyrir bókanir í vetrarleigu fram að jólum þann 15. Ágúst kl. 8:15. Opnað verður fyrir
bókanir eftir áramót, fyrir tímabilið 3. Janúar til 32. Maí 2024, þann 1, nóvember kl. 9:00. Athugið
að páskar eru undanskildir þar sem sækja þarf um sérstaklega og hefst umsóknartímabilið í byrjun
febrúar og verður úthlutað í samræmi punktafjölda umsækjanda.
Helgarleiga er þrír sólarhringar, annað hvort frá fimmtudegi til sunnudags eða föstudegi til
mánudags.


Hvernig skal bóka hús?
Á veturna er bókað beint á bókunarvefnum eða á skrifstofu og má hver félagsmaður bóka einu
sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót. Hægt er að skrá sig inn á bókunarvefinn sem er á
heimasíðunni, www.efling.is með rafrænum skilríkjum eða lykilorði og bóka þar beint/(rafrænt).
Einnig er hægt að bóka símleiðis á skrifstofu félagsins í síma 510-7500, eða senda fyrirspurninr á
orlof@efling.is.


Leiðbeiningar:
Inn á bókunarvefnum er farið í flipann “orlofshús” og svo “laus orlofshús”. Þá birtist yfirlitsmynd
yfir öll orlofshúsin sem sýnir aðeins þrjár vikur fram í tímann og passa þarf að velja það tímabil á
yfirlitsmyndinni sem á að bóka (með örvunum fyrir ofan hana). Veljið svo hús með því að fara í
flettigluggann fyrir ofan yfirlitsmyndina.
Það er aðeins hægt að bóka hvíta reiti. Ljósgulir reitir sýna leigutímabil sem eru lokuð – áður en
leigutímabil eru opnuð eru reitirnir ljósgulir en verða hvítir þegar búið er að opna og hægt að bóka
hús. Athugið að það eru ekki öll húsin í útleigu yfir vetrartímann og það sem er appelsínugult er
ekki hægt að bóka.


Eftirtalin orlofshús og íbúðir eru í boði yfir vetrartímann:

StaðsetningFjöldi húsaVikuverðHelgarverð
Hvammur í Skorradal / ekki pottur 1 hús35.000,- 25.500,-
Skarð í Borgarfirði / heitur pottur1 hús35.000,- 25.500,-
Svignaskarð í Borgarfirði 60 fm.m potti6 hús28.000,- 18.500,-
Svignaskarð í Borgarfirði 78 fm.m potti 10 hús31.000,-21.500,-
Skarðslækur 115 fm / ekki pottur1 hús31.000,-21.500,-
Borgarsel í Svignaskarði 78 fm.m potti 1 hús26.000,- 16.500,-
Stykkishólmur, Borgarhlíð 9 / raðhús m. potti1 hús31.000,-21.500,-
Stykkishólmur, Laufásvegur 21 og 23 / ekki pottur1 hús 28.000,-16.500,-
Hólmavík / ekki pottur1 hús28.000,-18.500,-
Íbúðir á Akureyri / ekki pottur 4 íbúðir28.000,18.500,-
Raðhús á Akureyri , Furulundur / ekki pottur3 hús 31.000,- 21.500,-
Raðhús á Akureyri, Klettaborg / ekki pottur3 hús31.000,-21.500,-
Kirkjubæjarklaustur / ekki pottur 2 hús26.000,-16.500,-
Úthlíð í Biskupstungum m. potti2 hús28.000,-18.500,-
Brekkuskógur stærri hús m. potti3 hús31.000,-21.500,-
Stóra Fljót í Reykholti Biskupstungum m. potti12 hús35.000,-25.500,-
Ölfusborgir m. potti10 hús28.000,-18.500,-
Hellishólar Fljótshlíð / ekki pottur1 hús31.000,-21.500,-
Vestmannaeyjar / ekki pottur1 hús28.000,-18.500,-
Hveragerði íbúð / ekki pottur1 hús26.000,-16.500,-
Heiðarbær 3 við Þingvallavatn1 hús31.000,-21.500,-
Bjarteyjarsandur á Hvalfirði1 hús31.000,-21.500,-

Bein leiga hjá umsjónarmanni á staðnum:Fjöldi húsa:Sími:
Frá 2. Okt. Illugastaðir / Heitur pottur2 hús 462 5909 / 462 6199
Frá 2. Okt. Einarsstaðir / Heitur pottur 3 hús 861 8310