Eflingarfólk er í sérstaklega erfiðri stöðu hvað snertir afkomu, húsnæðiskostnað, fjárhagsþrengingar, álag og heilsufar og réttindabrot á vinnumarkaði. Þetta sýndi könnun Vörðu vorið 2023 meðal félagsfólks ASÍ og BSRB. Lesa má niðurstöður könnunarinnar HÉR.
Þau sem skapa verðmætin eiga betra skilið. Berjumst saman fyrir bættum kjörum verkafólks.
Húsnæðisbyrði verkafólks
Heimild: Könnun Vörðu 2023


Fjárhagur og afkoma
- Um 60% Eflingarfólks á erfitt með að ná endum saman.
- Eflingarfólk býr við verstu afkomuna á vinnumarkaðnum.
- Erfiðleikar heimila verkafólks hefur hríðversnað.
Heimild: Könnun Vörðu 2023
Heimild: Könnun Vörðu 2023



Staða Eflingarkvenna
- Um 63% Eflingarkvenna á erfitt með að ná endum saman.
- Meira en helmingur Eflingarkvenna er að sligast undan húsnæðiskostnaði.
- Um 55% Eflingarkvenna getur ekki mætt óvæntum 80.000 kr útgjöldum.
Heimild: Könnun Vörðu 2023





