Félagsliðagátt

Fagnámskeið

Félagsliðagátt er ætluð er fólki sem vinnur við umönnun t.d. á öldrunarheimilum, í heimaþjónustu eða við heimahlynningu.

Markmið námsins er að auka þekkingu, færni og fagkunáttu þeirra sem sinna einstaklingum sem þurfa aðstoð eða sérhæfða þjónustu við athafnir daglegs lífs. Starfsvettvangur félagsliða spannar vítt svið félagslegrar endurhæfingar og virkniúrræða fyrir þá sem vegna félagslegra aðstæðna, veikinda, öldrunar, þroskaraskana eða hvers kona áfalla, þurfa á sérstökum stuðninga að halda.

Um félagsliðagátt

Félagsliðagátt er fyrir þá sem hafa náð 22 ára aldri og eru með a.m.k. þriggja ára starfsreynslu við umönnunarstörf. Nemendur þurfa einnig að hafa lokið 190 klukkustundum af starfstengdum námskeiðum, til að mynda Fagnámskeiðum 1 og 2 í umönnun. Eins eru framhaldskólaeiningar metnar ef áfangar eru þeir sömu eða sambærilegir við þá sem kenndir eru á brautinni. Einnig geta þeir sem vilja láta meta þekkingu sína og reynslu skráð sig í raunfærnimat hjá Mími: Raunfærnimat | Mímir – Vertu meira! (mimir.is)

Hjá Mími ljúka nemendur 4 önnum af 6, en til að útskrifast sem félagsliði ljúka nemendur síðustu tveimur önnunum í framhaldsskóla. Námið hjá Mími jafngildir 86 framhaldsskólaeiningum.

Uppbygging námsins

Kennslan er blanda af fjar- og staðnámi. Hver áfangi er kenndur í 4 vikur. Í upphafi og lok áfanga er skyldumæting í tíma síðdegis á virkum degi. Þess á milli fer námið fram á netinu. Nemendur hlusta á fyrirlestra heima, taka þátt í umræðum á netinu og vinna verkefni. Á milli staðnámstíma verða vinnustofur á Teams þar sem nemendur hitta kennara.

Námið er kennt á íslensku.

Skráning

Skráning fer fram á vefnum. Sjá næstu námskeið sem eru á dagskrá hér að neðan. Umsóknir eru gerðar í gegnum vef Mímis og svarar starfsfólk Mímis spurningum um umsóknarferlið.

Námskeið á dagskrá

Félagsliðagátt haustönn 2024

— Mímir, Höfðabakka 9

Kennslutímabil: 5. september til 10. júní 2024Umsóknarfrestur er til 12. ágúst. Félagsliðagátt er ætluð er fólki sem vinnur …

5. sep arrow_forward