Trúnaðarmannanámskeið Eflingar veita trúnaðarmönnum félagsins nauðsynlega fræðslu og þjálfun til að sinna hlutverki sínu. Námskeiðin eru símenntun sem trúnaðarmönnum ber að sækja út allan sinn skipunartíma. Námskeið eru haldin á dagvinnutíma einn dag í mánuði september-maí. Hugað er til jafns að fræðsluþörfum nýskipaðra trúnaðarmanna og endurmenntun reynslumeiri trúnaðarmanna.
Námskeiðin fara fram í Félagsheimili Eflingar á 4. hæð í Guðrúnartúni 1, 105 Reykjavík. Boðið er upp á hressingu og heitan hádegisverð.
Námskeiðin eru trúnaðarmönnum Eflingar að kostnaðarlausu. Notast er við þýðingar og túlkun til að gera allt námsefni aðgengilegt á bæði íslensku og ensku.
Allir trúnaðarmann eru sjálfkrafa skráðir á námskeiðin. Áminningar og óskir um staðfestingu á komu eru sendar í tölvupósti á alla trúnaðarmenn.
Allar upplýsingar um skipulag námskeiða má nálgast með því að senda erindi á netfangið felagsmal@efling.is eða með því að hringja á skrifstofuna í síma 510-7500.
Dagsetningar námskeiða veturinn 2024-2025
ALMENNI VINNUMARKAÐURINN
Fyrir áramót
- 12. september 2024 (fimmtudagur)
- 10. október 2024 (fimmtudagur)
- 7. nóvember 2024 (fimmtudagur)
- 5. desember 2024 (fimmtudagur)
Eftir áramót
- 16. janúar (fimmtudagur)
- 13. febrúar (fimmtudagur)
- 13. mars (fimmtudagur)
- 10. apríl (fimmtudagur)
- 15. maí (fimmtudagur)
OPINBERI VINNUMARKAÐURINN
Fyrir áramót
- 10. september (þriðjudagur)
- 8. október (þriðjudagur)
- 5. nóvember (þriðjudagur)
- 3. desember (þriðjudagur)
Eftir áramót
- 15. janúar (miðvikudagur)
- 12. febrúar (miðvikudagur)
- 12. mars (miðvikudagur)
- 9. apríl (miðvikudagur)
- 14. maí (miðvikudagur)
Réttur til námskeiðssetu án launaskerðingar
Laun trúnaðarmanna eiga ekki að skerðast vegna setu á trúnaðarmannanámskeiðum og er það réttur allra trúnaðarmanna Eflingar að sækja trúnaðarmannanámskeið á vinnutíma. Trúnaðarmenn þurfa heldur ekki að vinna kvöldvakt þann dag sem þeir hafa setið trúnaðarmannanámskeið.
Skrifstofa Eflingar aðstoðar trúnaðarmenn í samskiptum við atvinnurekendur ef minna þarf á þessi réttindi. Óski trúnaðarmenn eftir því að slíkt erindi sé sent fyrir þeirra hönd skulu þeir hafa samband á felagsmal@efling.is.
Námsefni
Námsefni og glærur eru vistuð á lykilorðsvarinni lendingarsíðu hér. Hafið samband við skrifstofu félagsmála til að fá lykilorðið ef þið hafið týnt því.