Orlofshús
Akureyri – Furulundur
- Ein vika38.449 kr
- Ein helgi 21.621 kr
- Komutími 17:00
- Brottför 12:00
Húsnæði
2 hús • 100m2 • 3 herbergi • 7 svefnpláss
Aðstaða
- Sjónvarp
- Gasgrill
- Örbylgjuofn
- Uppþvottavél
- Þvottavél
- Þurrkari
- Þráðlaust net
Lýsing
Í Furulundi 11 B eru tvö svefnherbergi, stofa með svefnsófa, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss, sængur og koddar fyrir 7 manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.
Í Furulundi 11 C og 11 D eru þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús með borðkrók og baðherbergi með sturtu. Svefnpláss, sængur og koddar fyrir 7 manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.
Athugið að engin nettenging er í húsunum.
Upplýsingar:
Hægt er að leigja rúmfatnað og kaupa þrif hjá Securitas Akureyri.
ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.
Leiga:
Vikuverð 38.449 kr. – Helgarverð, 3 nætur 21.621 kr.
Annað:
Akureyri iðar af mannlífi allan ársins hring. Í bænum búa um 18.000 manns og er hann sá langfjölmennasti utan höfuðborgarsvæðisins, miðstöð athafnalífs og þjónustu fyrir allt Norðurland.
Frá Akureyri er stutt í margar helstu náttúruperlur landsins og bærinn sjálfur er vinsæll áfangastaður um lengri eða skemmri tíma. Akureyri er vinsæll ferðamannastaður og fjölmargir heimsækja bæinn ár hvert. Frá Reykjavík er tæplega 5 klst. akstur til Akureyrar.
Tenglar:
Skoða á Google maps: