Orlofshús

Fljótshlíð, Hellishólar – Gimbratún 18

Suðurland – Allt árið

  • Ein vika31.000 kr
  • Ein helgi 21.500 kr
  • Komutími 16:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

1 hús 110m2 4 herbergi 8 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Uppþvottavél
  • Þvottavél
  • Þurrkari

Lýsing

Húsið er í orlofs- og frístundabyggðinni að Hellishólum í Fljótshlíð. Það er u.þ.b. 110 fm, með fjórum svefnherbergjum, stofu, borðstofu og eldhúsi. Gott baðherbergi með þvottavél og þurrkara. Gistirými er fyrir a.m.k. 8 manns, 2 einbeið rúm í hverju herbergi, sængur og koddar fyrir 10 manns. Fullbúið eldhús með borðbúnaði fyrir 12 manns, eldavél, ísskáp, uppþvottavél og örbylgjuofni og öllum smáraftækjum. Rúmgóð stofa með sjónvarpi, útvarpi, sófasetti, sófaborði og skenk. Sólpallur er við húsið með útihúsgögnum og gasgrilli, ekki heitur pottur. Öll ræstiefni og áhöld til þrifa eru til staðar.

Sjá skilmála

Upplýsingar

Lyklabox er við útidyrahurð – lyklanúmer kemur fram á samningi.

ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.

Tenglar

www.hellisholar.is

Leiga

Vikuverð: 31.000 kr. – Helgarleiga: 3 nætur, 21.500 kr.

Annað

Á svæðinu er glæsilegur 18 holu golfvöllur í mikilli náttúrufegurð. Golfklúbburinn Þverá er þar með sína starfsemi og er fullkomin æfingaaðstaða og hægt að leigja golfsett. Veitingasala er opin yfir sumartímann. Veiðileyfi eru seld á staðnum og hægt að renna fyrir silung í Hellishólavatni. Hægt er leigja reiðhjól og hjálma. Tveir heitir pottar eru í sameiginlegu baðhúsi sem gestir geta keypt sér aðgang að. Stórt leiksvæði er fyrir börn með fjölda leiktækja og einnig grasvöllur fyrir fótbolta. Matvöruverslun og sundlaug eru á Hvolsvelli, u.þ.b. 10 km frá Hellishólum.

Í næsta nágrenni eru útisundlaugar, samstarf við hestaleigu og Byggðasafnið á Skógum.

Skoða á google maps: