Orlofshús
Hólmavík
- Ein vika30.121 kr
- Ein helgi 16.909 kr
- Komutími 17:00
- Brottför 12:00
Húsnæði
1 hús • 50m2 • 3 herbergi • 7 svefnpláss
Aðstaða
- Sjónvarp
- Gasgrill
- Örbylgjuofn
- Uppþvottavél
- Þvottavél
Lýsing
Nýlegt sumarhús rétt fyrir utan Hólmavík, í göngufæri meðfram fjörunni. Húsið er 50 fm. með þremur herbergjum, tvö á neðri hæð og eitt í risi. Eldhús og stofa í einu rými á neðri hæð og setustofa með svefnsófa í risi. Baðherbergi með sturtu og þvottavél. Gistirými, er fyrir 7 manns, tvíbreið rúm í tveimur í herbergjunum, tvö einbreið rúm í einu herbergi og auk þess svefnsófi í stofu á efri hæð. Sængur og koddar eru fyrir 7 manns. Húsið er vel búið með öllum helsta búnaði: sjónvarp, ísskápur, uppþvottavél, bakarofn, örbylgjuofn og þvottavél, gasgrill og útihúsgögn. Öll ræstiefni og áhöld til þrifa eru til staðar. Húsið stendur á fallegum stað niður við flæðarmálið á milli Hólmvíkur og golfvallarins. Það er hvorki heitur pottur né uppþvottavél.
Upplýsingar
Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.
ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.
Tenglar
Leiga
Vikuverð í sumar 30.121 kr. Helgarverð, 3 nætur 16.909 kr.
Hólmavík er stærsta kauptúnið á Ströndum og er jafnframt verslunar– og þjónustumiðstöð sýslunnar og er í sveitarfélaginu Strandabyggð. Á Hólmavík er sundlaug, íþróttahús sem oft er opið á sumrin. Golfvöllur og mörg veiðivötn í kring þar sem hægt er að kaupa veiðileyfi. Veiðikortið gildir t.d. Haukadalsvatni í Haukadal. Svo má ekki má gleyma hinu fræga galdrasafni sem þarna er og vert að skoða. Einnig er veitingastaður og kaffihús á Hólmavík. Sundlaugar í nágrenni við Hólmavík eru á Drangsnesi og í Bjarnarfirði en aðeins fjær eru Krossaneslaug og laugin á Reykjanesi í Djúpi.
Skoða á Google maps: