Orlofshús

Hvammur, Skorradal

Vesturland – Allt árið

  • Ein vika35.000 kr
  • Ein helgi 25.500 kr
  • Komutími 16:00
  • Brottför 12:00

Húsnæði

1 hús 160m2 6 herbergi 10 svefnpláss

Aðstaða

  • Sjónvarp
  • Gasgrill
  • Örbylgjuofn
  • Barnarúm
  • Barnastóll
  • Uppþvottavél
  • Þvottavél

Lýsing

Húsið stendur við skógi vaxið land við Skorradalsvatn. Húsið er á tveimur hæðum, á efri hæð eru 3 herbergi með tvíbreiðum rúmum, barnarúm í einu þeirra og rúm fyrir barn upp í ca. 170 cm í einu. Önnur 3 herbergi eru með einstaklingsrúmum. Snyrting með sturtuaðstöðu er á efri hæð ásamt eldhúsi og stofu. Á neðri hæð er geymsla með 4 dýnum og rúmgott baðherbergi með sturtu. Þvottavél á neðri hæð. Svefnpláss er fyrir tíu. Sængur og koddar eru fyrir tíu manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, útvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.

Sjá skilmála

Upplýsingar

Lykla þarf að nálgast á skrifstofu Eflingar, Sætúni 1. Afgreiðslutími 8:15 – 16:00 nema til 15.00 föstudaga.

ATH. GÆLUDÝR ERU VELKOMIN Í ÞENNAN BÚSTAÐ.

Tenglar

www.skorradalur.is

Leiga

Vikuverð 35.000 kr. – Helgarleiga, 3 nætur 25.500 kr.

Annað

Góðar gönguleiðir eru í landinu í kring og mikil skórækt. Gott pláss fyrir leik barna eða tjöld er fyrir neðan húsið. Sólpallur, grill og garðhúsgögn. Tilvalið er að labba niður að vatninu og kasta fyrir fisk. Hvammur er gamalt óðalsetur og mikil perla í orlofshúsaeign Eflingar.

Um 1 klst. tekur að keyra þangað frá Reykjavík eða um 94 km.

Skoða á google maps: