Orlofshús
Hveragerði, Breiðumörk 19
- Ein vika26.000 kr
- Ein helgi 16.500 kr
- Komutími 16:00
- Brottför 12:00
Húsnæði
1 hús • m2 • 3 herbergi • 6 svefnpláss
Aðstaða
- Sjónvarp
- Gasgrill
- Örbylgjuofn
- Uppþvottavél
- Þvottavél
- Þurrkari
Lýsing
Íbúðin er á efri hæð að Breiðumörk 19, í sama húsi og skrifstofa Eflingar. Stigi er af jarðhæð og ekki er lyfta í húsinu. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með tvíbreiðum rúmum, gott eldhús með borðkróki og öllum eldhúsbúnaði. Rúmgóð stofa og borðstofa í sama rými og útgengt á litlar svalir með grilli. Gott baðherbergi með stórri sturtu. Svefnstæði, sængur og koddar fyrir 6 manns og borðbúnaður fyrir 10 til 12 manns. Íbúðin er vel búin með öllum helsta búnaði, sjónvarp, útvarp, ísskápur, bakarofn, örbylgjuofn og þvottavél með þurrkara í. Íbúðin er öll nýuppgerð og allur búnaður og tæki ný. Öll ræstiefni og áhöld til þrifa eru til staðar.
Upplýsingar
Lyklabox er við útidyrahurð – lyklanúmer kemur fram á samningi.
GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ.
Tenglar
Leiga
Vikuverð 26.000 kr. – Helgarleiga, 3 nætur 16.500 kr.
Annað
Hveragerði er þekkt fyrir hverasvæði sem er í miðjum bænum og svokallaðar „skáldagötur“ þar sem margir þekktustu rithöfundar landsins bjuggu á árum áður. Uppá lagt er að ganga um bæinn og koma við á hverasvæðinu þar sem hægt er að skella sér í fótaleðjubað eða sjóða egg í einum af hverunum. Svo er alltaf hægt að skella sér á kaffihús en fjölbreytt þjónusta er í bænum ásamt því að stutt er í sund og golf.
Skoða á google maps:
