Orlofshús
Svignaskarð – Skarð
- Ein vika35.000 kr
- Ein helgi 25.500 kr
- Komutími 16:00
- Brottför 12:00
Húsnæði
1 hús • 160m2 • 5 herbergi • 10 svefnpláss
Aðstaða
- Sjónvarp
- Gasgrill
- Örbylgjuofn
- Uppþvottavél
- Þvottavél
- Þurrkari
- Heitur pottur
Lýsing
Húsið er á einni hæð og eru 2 herbergi með tvíbreiðum rúmum, 3 herbergi með 1 og ½ breidd af rúmum. Auk þess eru 2 aukadýnur til staðar. Stórt eldhús og stofa og sjónvarpsstofa ásamt snyrtingu og stóru baðherbergi með sturtu. Góður bakgarður, pallur, grill og garðhúsgögn. Svefnpláss er fyrir tólf. Sængur og koddar eru fyrir tólf manns. Allur helsti útbúnaður fylgir þ.e. sjónvarp, útvarp, ísskápur, eldavél, örbylgjuofn og gasgrill. Einnig öll ræstiefni og áhöld.
Upplýsingar
Lyklar eru afhentir í Lyklabox – lyklanúmer kemur fram á samningi.
Til að sjá staðsetningu á korti smellið hér.
ATH. GÆLUDÝR ERU BÖNNUÐ
Tenglar
Leiga
Vikuverð 35.000 kr. – Helgarleiga, 3 nætur 25.500 kr.
Annað
Húsin tilheyra orlofsbyggð Svignaskarðs og er beygt út af þjóðvegi 1 við Langavatn og þar niður í orlofshúsabyggðina. Fallegt er á þessu svæði og landið kjarri vaxið. Margt fallegt er hægt að skoða allt um kring og má þá nefna Langavatn, Baulu við Bifröst og Hreðavatn en þar eru einstaklega fallegar gönguleiðir. Um 1 klst. og 15 mín. tekur að keyra frá Reykjavík en leiðin er um 107 km.
Skoða á google maps:
