Fyrir launagreiðendur
Hér geta launagreiðendur nálgast helstu upplýsingar um hvernig best sé að bera sig að við greiðslur gjalda auk annarra hagnýtra upplýsinga. Hægt er að senda fyrirspurnir á skilagrein@efling.is
Launagreiðendur athugið!
Efling stéttarfélag hóf frá og með 1.janúar 2024 móttöku skilagreina og innheimtu félagsgjalda fyrir félagsfólk Eflingar ásamt gjöldum í sjúkra-, orlofs- og fræðslusjóði. Verkefnið var áður í höndum Gildis lífeyrissjóðs.
Vakin er athygli á að aðeins er tekið við skilagreinum 3 mánuði aftur í tímann.
Hægt er að hafa samband í tölvupósti (skilagrein@efling.is) ef þörf er á að senda skilagreinar lengra aftur í tímann.
Fyrir frekari upplýsingar sendið fyrirspurnir á netfangið skilagrein@efling.is.
Vefskil
Launareiknivél
Kjarasamningar og launatöflur
Skil iðgjalda
Iðgjöld eftir kjarasamningum
Desemberuppbót
Á þitt starfsfólk að greiða í Eflingu?
Starfssvið Eflingar stéttarfélags nær yfir lögsagnarumdæmi:
- Reykjavíkur
- Kópavogs
- Seltjarnarness
- Mosfellsbæjar og Kjósarsýslu að Botnsá
- Grímsnes og Grafningshrepps
- Hveragerðisbæjar
- Sveitarfélagsins Ölfuss
- Hafnarfjarðar (starfsfólk á veitinga- og gististöðum og við iðnað)
- Garðabæjar (starfsfólk á veitinga- og gististöðum, við iðnað, í heimaþjónustu og starfsfólk Vífilsstaða)
Félagsfólk Eflingar starfar á áður nefndum svæðum og vinnur við eftirtaldar og aðrar hliðstæðar starfsgreinar:
a) Við fermingu og affermingu skipa og hvers konar annarra flutningstækja svo og móttöku og afhendingu farms.
b) Við húsbyggingar og efnisflutninga vegna byggingaframkvæmda.
c) Við hafnargerð, vegagerð, skurðgröft, landbúnaðarstörf og efnisflutninga sem tengjast áðurnefndum starfsgreinum.
d) Í þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
e) Í heimaþjónustu, á leikskólum, við umönnun á sjúkrahúsum og stofnunum, í þvottahúsum og saumastofum sjúkrastofnana.
f) Við ræstingar, hreinlætisstörf, efnalaugar og þvottahús.
g) Við mötuneytisstörf.
h) Við varðstörf, öryggisvörslu og fjármunaflutninga.
i) Á veitinga- og gististöðum.
j) Við vinnslu og sölu sjávarafurða og landbúnaðarafurða.
k) Í iðnaði og í verksmiðjum svo sem járnsmíði, skipasmíði, blikksmíði (tunnugerð), garðyrkju, byggingar- og þungaiðnaði.
l) Við móttöku og afhendingu vara, þar með taldir bifreiðastjórar.
m) Við olíu-, bensín-, smur-, bón- og ryðvarnarstöðvar og hjólbarðaverkstæði.
n) Við stjórn vöruflutningabifreiða í þjónustu annarra og við stjórn á stórvirkum vinnutækjum, svo sem ýtum, vélskóflum og vélkrönum.
o) Við orkufrekan iðnað, jarðgangnagerð, virkjanir og aðrar stórframkvæmdir sem eru sambærilegar og við hliðstæðar nýjar starfsgreinar.
p) Við hvers konar önnur framleiðslu- og flutningastörf.
q) Við sjómannastörf og siglingar
Leiðréttingar á áður sendum skilagreinum
Ef launagreiðandi þarf að gera leiðréttingar á eldri skilagreinum sem hafa verið sendar inn er nauðsynlegt að senda póst á skilagrein@efling.is. Aðeins er hægt að leiðrétta 3 mánuði aftur í tímann.
Skilagreinar aftur í tímann
Aðeins er tekið við skilagreinum 3 mánuði aftur í tímann. Hægt er að hafa samband í tölvupósti (skilagrein@efling.is) ef þörf er á að senda skilagreinar lengra en 3 mánuði aftur.
Hvernig eru skilagreinar greiddar
Greiðsluseðill er sendur í heimabanka eftir að skilagrein hefur verið send til Eflingar. Krafan stofnast þó ekki fyrr en skilagreinin hefur verið yfirfarin og ef misræmi kemur í ljós stofnast krafan samkvæmt yfirfarinni skilagrein.
– Ef krafa stofnast ekki í heimabanka hefur skilagrein ekki borist af einhverjum ástæðum.
Hvenær á að greiða skilagreinar?
Gjalddagi er 15. dagur næsta mánaðar á eftir launamánuði.
– Eindagi er 30. dagur sama mánaðar. Ef greiðsla er ekki innt af hendi fyrir eindaga eru reiknaðir dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
Ef skilagrein er ekki greidd?
Innheimtuferlið hefst ef iðgjöld eru ekki greidd á eindaga. Áminning er send 7 dögum eftir eindaga og innheimtuviðvörun 15 dögum eftir eindaga. Hafi krafa ekki verið greidd 11 dögum eftir innheimtuviðvörun er hún send í löginnheimtu.
Dæmi um iðgjöld vegna apríl mánaðar:
- Gjalddagi er 15. maí.
- Eindagi er 30. maí.
- Áminning send 6. júní.
- Innheimtuviðvörun send 14. júní þar sem er gefinn 11 daga frestur.
- Vanskilin send í löginnheimtu þann 25. júní sé krafan ekki greidd.
Hvert má beina fyrirspurnum?
Allar spurningar má senda á netfangið skilagrein@efling.is