Úrval Útsýn ferðaafsláttur

Félagsfólki Eflingar stendur til boða að kaupa afsláttarmiða hjá Úrval Útsýn sem gildir sem inneign að upphæð 30.000 kr. við pöntun á þjónustu hjá þeim. Miðinn kostar kr. 20.000.- til félagsfólks svo að sparnaður er töluverður fyrir þá sem geta nýtt sér þessa miða. Gjafabréfin eru seld í gegnum Mínar Síður.

Gjafabréf þessi gilda í allar pakkaferðir á vegum Sumarferða og Úrvals-Útsýnar, með gildistíma til 31, mars 2024. Skuldbinda ferðaskrifstofurnar sig til að taka við þeim sem greiðslu upp í þær ferðir. Ath. gjafabréfin gilda ekki í ferðir um jól og páska. Gjafabréfum er ekki hægt að skila.

Þetta virkar þannig að þegar keypt er þjónusta hjá Úrval Útsýn fær félagsmaður ákveðinn kóða sem er svo sleginn inn við pöntun á vefnum og lækkar heildarverðið þá um 30.000.- kr.

10 punktar fara af punktainneign félagsmanns við kaup á afsláttarmiðanum frá Úrval Útsýn.

Takmarkað magn er í boði. Hver félagsmaður getur einungis keypt einn miða á hverju almanaksári. 

Réttindi til styrkja / endurgreiðslna úr orlofssjóð byggist á eftirfarandi réttindum:

  • Félagsfólk hafi greitt sl. 6 mán. samfellt og eigi punktainneign sem er til frádráttar hverju sinni.
  • Félagsfólk sem er komið á lífeyri eða örorku geta keypt allt sem tilheyrir miðasölu í 2 ár eftir starfslok (sbr. aðra sjóði) eða eiga tiltekinn punktafjölda